05.05.1924
Efri deild: 62. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 423 í D-deild Alþingistíðinda. (3251)
146. mál, frestun á embættaveitingu
Jóhannes Jóhannesson:
Jeg held, að það væri besta leiðin að vísa þessu máli til stjórnarinnar. Hæstv. forsrh. (JM) hefir bent á, að till. þessi gangi of langt, og það væri leiðinlegt fyrir deildina að samþykkja tillögu, sem fyrirsjáanlegt er, að verður aldrei framkvæmd. Jeg geri það því að till. minni, að málinu sje vísað til stjórnarinnar.