12.03.1924
Neðri deild: 21. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 458 í D-deild Alþingistíðinda. (3302)

53. mál, prófessorsembættið í íslenskri bókmenntasögu

Flm. (Jakob Möller):

Það er fljótsagt, að í máli þessu hafa engin önnur mótmæli komið fram en þau, sem við mátti búast í upphafi. Jeg vissi fyrirfram, hvernig margir hv. þm. hugsa í þessu máli, þótt mig hinsvegar furði á þeim hugsanagangi. Menn hrópa með sparnað eins og hið eina sáluhjálplega meðal, en gleyma að gá að því, hvort landinu er unnið tjón eða gagn með sparnaðinum. Hver heilvita maður ætti þó að geta sjeð, að það út af fyrir sig, að skera niður öll útgjöld, getur engu bjargað. Því að margt af þeim er alveg óhjákvæmilegt til þess að halda þjóðfjelaginu uppi og þjóðarbúskapnum. Það, sem hjer er um að ræða, er menningarmál og það viðurkenna menn, að eitthvað sje þó gefandi til þess að halda hinum andlega búskap þjóðarinnar uppi, því að annars væru áreiðanlega komin fram frv. um að steindrepa alla skóla og alla menningarstarfsemi í landinu, þar sem alt slíkt hefir óhjákvæmilega einhver útgjöld í för með sjer. Yfirleitt eru allar þær ástæður, sem fram hafa verið færðar gegn þessu máli, algerlega einskisvirði. Og jeg verð að segja, að það gefur ekki góðar vonir um framtíðina, þegar nýir þm. leyfa sjer að leggja slíkar röksemdir fyrir hið háa Alþingi.

Það hefir verið sagt, að vjer getum ekki sniðið okkur stakk eftir Norðmönnum. Hjer er alls ekki um neitt slíkt að ræða. Eða halda menn kanske, að Norðmenn fari að sækjast eftir að fá sýslumenn og presta hjeðan af landi til að gegna slíkum embættum þar? Jeg held, að þetta sje hæpin röksemdaleiðsla.

Hv. þm. Ak. (BL) talaði um, að Íslendingar myndu vera fúsir að selja skyldleika sinn við Snorra Sturluson. En hverjir eru það, sem selja vilja skyldleika sinn við Snorra Sturluson? Hvort eru það fremur þeir, sem vilja eitthvað gera til að halda þeim mönnum í landinu, sem færastir eru til þess að bera uppi andlega menningu þjóðarinnar, eða þeir, sem vilja drepa niður og tortíma allri menningarstarfsemi? Og hvað því viðvíkur, að próf. Sigurður Nordal geti framfleytt sjer og sínum af þeim launum, sem hann hefir, þá get jeg gefið þær upplýsingar, að hann verður nú að greiða 5000 kr. á ári í húsaleigu, ljós og hita, og opinber gjöld. Þá eru eftir 2400 kr. af laununum til allra annara útgjalda. En um þetta er ekki að sakast; það er ástandið í landinu, sem gerir þetta að verkum. Og þegar á það er að líta, að hjer er um mann að ræða, sem er að byrja starfsemi sína og sjer fram á, að hann kemst ekki af með þau laun, sem honum eru goldin, þá er það harla ljelegt og bendir ekki á sjerstaklega uppbyggilegt hugarfar, að bregða honum um skort á föðurlandsást, þótt hann sjái sjer ekki annað fært en að leita þangað, sem honum bjóðast viðunanleg kjör.

Hv. 1. þm. N.-M. (ÁJ) taldi þetta brot á reglu þeirri, sem þingið hefði nú tekið upp. En jeg verð að minna hann á það, að engin regla er án undantekningar, enda er augljóst, að annað leiddi til hinna mestu öfga. Menn komast aldrei undan því að meta það með sjálfum sjer, hvenær regla sú skuli gilda og hvenær ekki. Við flutningsmenn þessa máls teljum, að sönn menning þessa lands krefjist þess, að vikið sje frá þessari reglu nú, því að það dettur engum í hug, að þjóðarbúið fari á höfuðið fyrir þau útgjöld, sem hjer verður um að ræða. Hjer er ekki ákveðin nein upphæð, heldur er farið fram á það að skora á stjórnina að leita samninga við prófessorinn. Það er því samningsatriði, hvort uppbótin verður 4000 kr. eða annað. Ef það upplýsist, að dýrara sje að lifa í Noregi, þá verður sjálfsagt litið á það.

Út af orðum hv. þm. V.-Sk. (JK) um háskólasjóðinn, þá hefir lauslega verið að því vikið, hvort það gæti komið til mála. En það lítur út fyrir, að því fje sje svo ráðstafað fyrir framtíðina, að það geti ekki orðið. En vitanlega má ganga úr skugga um það fyrir síðari umr. Og þótt till. verði ekki vísað til nefndar, þá munum við flutningsmenn taka að okkur að afla upplýsinga um þetta atriði, svo að hv. þm. er óhætt að greiða till. atkvæði til síðari umr.