12.04.1924
Neðri deild: 49. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 494 í D-deild Alþingistíðinda. (3346)
98. mál, gullkaup til seðlatryggingar
Jón Auðunn Jónsson:
Mjer virðist, að hjer kenni nokkuð mikils misskilnings hjá hv. flm. (SvÓ), því á þingi 1921 var okkur, sem fjölluðum um lögin um seðlaútgáfu Íslandsbanka, og þar með hv. flm. (SvÓ) sjálfum, kunnugt um það, að bankinn hafði ekki meira gull en nam tveim miljónum og 260 þús. kr. En aftur átti bankinn innieign í erlendum bönkum, og lá fyrir yfirlýsing um það, að það fje yrði ekki notað nema heimild kæmi til frá ríkisstjórninni. Og til þessa bendir 4. gr. þessara laga, þar sem bankanum er heimilað að hafa úti 6 miljónir kr. í seðlum, án þess að borga af þeim aukagjald. En strax og seðlaútgáfan fer fram úr 6 milj. kr., þá greiðist 2% aukagjald af þeim hluta seðlanna, sem ógulltrygður er, eftir 1. gr. laganna, eða af 62,5% af þeim seðlum.
Jeg hafði ekki athugað þessa till. nægilega við fyrri umr. En eftir þeim upplýsingum, sem nú hafa komið fram, þá er sýnilegt, að ekki er um neinn gullforða að ræða, sem bankinn megi missa, nema hann hafi keypt gull síðan lögin frá 1921 voru samþykt. Í lögunum er einnig svo fyrir mælt, að bankanum sje skylt að selja ríkissjóði með nafnverði það af gullforða sínum, sem hann þarf ekki til tryggingar seðlunum. En nú er fullsannað með vottorði yfirskoðunarmanna, að ekkert gull er aflögu. Jeg get því ekki sjeð, að nein ástæða sje til þess að samþykkja þessa till. Það gæti álitist sem svo, að þingið hjeldi, að gullforði bankans væri meiri en hann raunar er, en jeg vil ekki gera mig beran að slíkri fávisku og líklega enginn þeirra, sem á þingi voru 1921. Jeg vil því heldur vísa málinu frá með rökstuddri dagskrá, með því jeg lít svo á, að gullið eigi að kaupa samkv. lögum frá 1921. eins fyrir því, þó till. sje ekki samþ., ef gullið annars er til. En sje það ekki til, þá er till. þýðingarlaus.
Jeg leyfi mjer því að bera hjer fram svofelda rökstudda dagskrá:
Með því að Íslandsbanki hefir enn ekki meiri gullforða en þörf er fyrir til tryggingar þeim 6 miljónum kr. í seðlum, sem bankinn má hafa í umferð í lok októbermánaðar næstkomandi, telur deildin ekki þörf á að samþykkja till., og tekur því fyrir næsta mál á dagskrá.
Annars vona jeg, að flm. taki till. aftur, og að hún ekki komi framvegis á dagskrá, því hún er til þess eins fallin að sýna vanþekkingu flm. í þessu máli.