03.05.1924
Neðri deild: 62. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 527 í D-deild Alþingistíðinda. (3366)

129. mál, klæðaverksmiðja

Sveinn Ólafsson:

Jeg bjóst við, að hv. flm. (ÞórJ) mundi fyrstur kveðja sjer hljóðs, en þar sem hann hefir ekki gert það, vil jeg leyfa mjer að fara um málið nokkrum orðum.

Það er svo um þetta mál, að það þyrfti að rekja tildrög þess og sögu ullariðnaðarins, ef vel ætti að vera. En jeg sje, að ekki muni vera tími til að fara út í þá sálma, og mun jeg sleppa því að mestu. (JAJ: Það hefir verið gert áður.) Lítilsháttar, en þó enganveginn nógu ljóslega. Vil jeg því drepa á einstöku atriði. Byrja jeg þá á fyrsta ullariðjufyrirtækinu, sem reist var hjer á landi, en það voru innrjettingar Skúla landfógeta. Það var allsherjarfyrirtæki, sem þá var stofnað, eins og fyrirtæki það, sem hjer er stefnt að. Auðvitað vantaði þá alla reynslu, og fór því um þetta fyrirtæki sem öllum er kunnugt, að það veslaðist upp á tiltölulega stuttum tíma og varð að hætta. Svo fór um það allsherjarfyrirtæki. Einn talsvert mikilsverðan árangur af þessari fyrstu tilraun má samt telja, að þekking landsmanna á meðferð vefnaðartækja óx og heimilisiðnaðurinn jókst nokkuð á eftir.

Svo lágu þessi fyrirtæki niðri um langt skeið, til um 1880. Þá var aftur hafist handa á þann hátt, að byrjað var á kembingarvjelum, og hófst sú tilraun norður í Þingeyjarsýslu. Það, sem síðan hefir verið gert, er í raun og veru framhald af þessu, þannig, að á hverjum tíma hefir verið leitast við að hjálpa heimilisiðnaðinum og auka hann. Það hefir meðal annars verið gert með þeim 3 ullarverksmiðjum, sem risið hafa upp. Jafnframt hefir aftur verið tekið að vinna innlenda dúka til þess að bæta úr klæðaþörf landsmanna. Allar 3 verksmiðjurnar, sem starfað hafa, Iðunn, Gefjun og Álafoss, hafa notið stuðnings úr ríkissjóði í lánsmynd, og það talsvert mikils. Efast jeg ekki um, að þær hafi gert töluvert gagn, með því að lyfta undir heimilisiðnaðinn, hver í sínu nágrenni. Svo sem kunnugt er, hafa 2 af þessum fyrirtækjum í raun og veru mishepnast, að því leyti sem þau hafa ekki getað orðið fjárhagslega sjálfstæð. En eitt þeirra, hið norðlenska, Gefjun, stendur föstum fótum fjárhagslega, og hefir því náð talsvert betri árangri en hin. Eru miklar líkur til þess, að það geti orðið uppbyggilegt fyrirtæki í sínum landshluta, og fullnægt þörf hans langt fram yfir það, sem lengi var ætlað. Hefir Gefjun síðustu árin unnið mjög áferðarfallega og ljetta dúka, sem áður hefir þurft að fá frá útlöndum.

Stefnan í þessu tóvinnumáli hefir alt frá upphafi verið að undirbyggja heimilisiðjuna, jafnframt því að koma upp innlendri dúkagerð, er geti fullnægt klæðaþörf landsmanna. Þessi var líka stefna þeirra manna, er stóðu að þáltill. 1921. Sú tillaga bendir ljóslega á það og allur búningur hennar. Hún kom fram tiltölulega snemma á þinginu, var mjög ítarleg og í mörgum liðum. Gekk hún í gegnum tvær umr. í hvorri deild, fór í sameinað þing og var afgreidd þaðan. Var tillagan þá orðin styttri og umfangsminni en í upphafi, en þó lík upphaflegu tillögunni að því leyti, að bent var fastlega á þá stefnu að undirbyggja heimilisiðjuna.

Fyrsta atriðið, sem nefndin, er skipuð var af stjórninni, átti að athuga, var að benda á, hvar álitlegast væri að koma á fót kembingar- og lyppivjelum fyrir heimilisiðnaðinn. Í öðru lagi, hvar heppilegast væri að reisa klæðaverksmiðjur, eftir aðstöðu til vatnsafls o. fl. Þetta var hið tvöfalda verkefni nefndarinnar. Nú fór svo, að úr þessu aðalverkefni varð ekki það, sem vænst var eftir með tillögunni, er hún var samþykt. Það snjerist í þá átt hjá ullariðjunefndinni, að hún hvarf frá því að koma með tillögur um að koma upp kembingar- og lyppivjelum og einnig frá þeirri hugmynd að reisa fjórðungsverksmiðjur til þess að fullnægja klæðaþörf landsmanna, svo sem ætlað hafði verið. Komst nefndin að þeirri niðurstöðu, að þörf landsmanna á heimilisiðju og dúkagerð yrði best fullnægt með því að reisa eina allsherjarverksmiðju í Reykjavík eða þar í nágrenninu. Álit þessarar nefndar hefir aldrei verið prentað, og er það þó allítarlegt og að sumu leyti merkilegt. Það snýst að mestu leyti um þessa spánnýju hugmynd um allsherjarverksmiðju, en gengið var fram hjá því, sem í upphafi var ætlast til með tillögunni.

Það er og rjett að geta þess, að þessi nefnd var skipuð tómum höfuðstaðarbúum, mönnum, sem vitanlega höfðu talsverða tilhneigingu til að líta á málið gegn um reykvísk gleraugu. Það var líka auðsætt af niðurstöðu nefndarinnar, að gleraugun höfðu brugðið sínum sjerstaka lit á málið og meðferð þess. Bætti það og ekki um, að einn nefndarmanna, Hallgrímur heitinn Kristinsson, fjell frá, áður en nefndin hafði tekið ákvarðanir um tillögur sínar. Hann tók, eins og menn vita, veiki þá, er varð honum að bana, skömmu eftir að nefndin settist á rökstóla á öndverðum vetri 1921–22.

Við fyrri umr. þessa máls benti jeg á það, hverjar afleiðingar það myndi hafa, ef fylgt væri tillögum nefndarinnar frá 1922 og slík verksmiðja sett á stofn hjer í Reykjavík, og þó til þess ætlast, að hún yrði borin uppi af öllum eða flestum landsmönnum og stofnfjeð lagt fram af þeim. Jeg vil ekki fara að endurtaka það, sem jeg sagði þá, en skal þó aðeins drepa á það, að þar sem hvorttveggja er, að hart er nú í ári og erfitt um allar fjárframlögur, og þar sem auk þess horfið er frá þeirri hugmynd að koma upp eða hjálpa minni tóvinnufyrirtækjum í ýmsum landshlutum, þá eru mjög litlar líkur til þess, að unt verði að safna miklu fje úti um land til þessarar verksmiðju hjer í Reykjavík. Afleiðingin yrði því sú, að ríkissjóður yrði að leggja af mörkum bróðurpartinn af stofnfjenu ef fyrirtækið á annað borð ætti að komast á fót. En þar væri um mikla áhættu að ræða fyrir ríkissjóðinn, því þótt unt yrði að afla fjárins og fyrirtækið kæmist á laggirnar, þá myndi það eiga í illvígri samkepni við þær erlendar dúkaverksmiðjur, sem landsmenn skifta nú mest við en jafnframt dýrtíð og ásælni bæjarins, sem ríkisstofnaninar hjer verða að dropa. Það yrði því alls ekki hættulaust fyrir ríkissjóðinn að ráðast í þetta, og auk þess hefir hann nú tæplega efni á því, því að það er ærið margt, sem hann þarf að annast á næstunni. Jeg veit, að það vakir nú fyrir þinginu, að ríkissjóður muni á næsta ári þurfa að ráðast í mjög fjárfrekt fyrirtæki, sem ekki má með neinu móti dragast til muna. Það er að koma upp kæliskipi, til að flytja til útlanda kjöt og fisk; hefir það verið áætlað um 1½ miljón kr. þá er landsspítalinn annað fyrirtækið, sem lengi hefir verið beðið eftir og vart má dragast lengi úr þessu, og mundi hann vart verða undir þrem miljónum kr. þá er þriðja fyrirtækið, kaup á strandvarnarskini, sem kemur til að hvíla á ríkissjóðnum, þar sem hann hefir fengið landhelgissjóðinn að láni. Kostnaður við það sjálfsagt 1½ miljón króna. Hjer eru nú strax komnar 6 miljónir króna, en ótalin eru samt mörg fleiri fyrirtæki sem bíða eftir getu ríkissjóðsins en þola illa bið. Þar á meðal eru t. d. ræktunarfyrirtækin á Suðurlandsundirlendi, sem ilt væri að láta lognast út af, eftir að svo miklu fje hefir þegar verið kostað þar til. Þá eru jarðræktarlögin með nýbýlahugmyndina, ef þau eiga ekki að vera tómt pappírsgagn; ennfremur vegir, símar, hafnir og ýmislegt fleira, sem öllu hefir verið skotið á frest vegna getuleysis ríkissjóðsins, en verður væntanlega hrundið í framkvæmd á næstu árum, ef nokkur efni verða á því. Þegar á þetta alt er litið, þá sjáum við ljóslega, að ekki eru miklar líkur til, að þetta allsherjarfyrirtæki komist í framkvæmd á næstunni, þótt þessi till. verði samþ., og það því síður, sem með henni verður drepinn niður áhugi ýmsra hjeraða á þessu máli. Enn er eitt ótalið, sem ríkissjóðurinn þarf að greiða, en það er eitthvað af miljónaskuldum hans erlendis. Þetta horfir því svo við mjer, að engin framkvæmd muni geta orðið á þessu fyr en eftir mörg ár. Því að það mun vera nokkurnveginn víst, að almenningur fæst ekki, svona í byrjun, til að leggja mikið fje í slíkt fyrirtæki; frekar myndi það, þegar fyrirtækið væri tekið til starfa og hefði sýnt góðan árangur, en á því mun verða dálítil bið. Hjer er því í rauninni aðeins um það að ræða, sem Englendingar kalla „bluff“, eða vindhögg. Hjer er aðeins verið að reyna að sýnast, verið að hampa áhuga, sem er eintóm látalæti. Nei, eina leiðin til að komast eitthvað áleiðis í þessu efni er sú, að leita til landsmanna, leita til sveitanna og reyna að glæða áhuga fyrir þessum málum úti um sveitirnar. Það er þetta, sem vakir fyrir mjer og öðrum með því að flytja brtt. á þskj. 457. Og jeg er viss um, að ef ríkið á annað borð er fært um að veita áhuga sveitanna einhverja aðstoð í þessu efni með sjerfræðilegum leiðbeiningum, lánsábyrgðum o. s. frv., þá næst langtum betri árangur með þeim hætti en eftir till. á þskj. 451.

Með því að þetta mál hefir nú verið talsvert rætt, þá vil jeg ekki þreyta hv. deildarmenn með lengri ræðu. Þykist jeg vita, að hv. þdm. hafi kynt sjer brtt. mína og borið hana saman við aðaltill. og gert sjer ljósa grein þess, hver till. muni vera líklegri til að ná einhverjum árangri í því að efla innlenda tóvinnu. Það er í rauninni ekki neinn ágreiningur á milli flm. þessara tveggja till. um það, að brýn þörf sje á að gera eitthvað til að auka þessa innlendu framleiðslu og bola þeirri erlendu samkepni frá. Hjer er aðeins um aðferðarmun að ræða eða fyrirkomulagið. Það er trú mín, að ekki þurfi mikið til að hvetja menn til framkvæmda eða ýta þeim af stað í þeim landshlutum, sem vantar allar stofnanir af þessu tæi. Það mundi nægja, að mönnum væri veitt sjerfræðileg aðstoð og bendingar, og auk þess ef til vill lítilsháttar lánsábyrgðir.

Jeg hefi ætíð hugsað mjer, að tóvinnufyrirtækjum landsins væri þá best borgið, ef að þeim stæðu fjelög, sem stofnuð væru með fjárframlögum hjeraðsbúa á hverjum stað, og að ríkið væri þar laust allra mála. Slík fjelög yrðu þá helst stofnuð þar, sem þörfin væri mest, en hún er ekki minni í strjálbygðum hlutum landsins en hjer í Reykjavík. Jeg tel það yfirleitt illa farið, ef upp úr þessari einlægu viðleitni til að auka og efla íslenska tóvinnu og dúkagerð skyldi einungis rísa „spekúlativt“ fyrirtæki, stofnað í gróðaskyni handa nokkrum Reykvíkingum og Reykjavíkurbæ, gagnslaust öðrum, en borið á herðum ríkissjóðs.