06.05.1924
Neðri deild: 66. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 592 í D-deild Alþingistíðinda. (3414)
141. mál, tryggingar fyrir enska láninu
Jón Baldvinsson:
Hæstv. fjrh. (JÞ) segir, að stjórnin muni standa ríkisins megin, er hagsmunir þess og bankanna rekist á. Jeg er þó horngrýti hræddur um, að svo hafi þó ekki verið til þessa; en það er auðvitað gott að heyra, að svo eigi að verða eftirleiðis.
Að því er snertir það, sem jeg drap á áðan, þá var hæstv. fjrh. (JÞ) sammála mjer um það, hvílík vandræði væru, að vextir væru hjer svo háir. Hefir Íslandsbanki farið þar miklu frekar, því að um langt skeið voru vextirnir hærri hjá honum en í Landsbankanum.
Viðvíkjandi þýðingu gengishrunsins fyrir bankana, þá er þar um mjög einfalt dæmi að ræða. Setjum t. d. svo, að Íslandsbanki tapi 4 miljónum króna á gengisfallinu, en eigi svo um 20 miljónir króna úti í víxlum, sem hann fengi ekki greidda nema að litlu leyti, ef krónan fjelli ekki í verði. Þá mundi hann þó óbeinlínis græða á gengishruninu, og það ekki svo lítið. Hlýtur hæstv. fjrh. (JÞ) einnig hjer að vera mjer sammála, þar sem hann hefir játað, að hægara sje að borga skuldir, þegar gengið sje fallandi.
Að því er snertir ummæli hæstv. fjrh. (JÞ) um enska lánið, að ekki sje hægt að borga það fyr en eftir mörg ár, þá vil jeg geta þess, að þetta lán muni að þessu leyti vera einstakt í tölu lána, því að jeg veit ekki betur en að það sje ávalt vel þegið, er lán eru greidd upp. En hjer er ekki því til að dreifa. Þótt við hömpuðum þessum pundum framan í Englendinginn, þá mundi hann hvorki vilja heyra þau nje sjá. Það mun vera alveg óvenjulegt, að svo rammlega sje frá láni gengið, og getum við verið stoltir af þeirri stjórn, sem um þetta samdi, að hafa skarað hjer fram úr á þessu sviði.