06.05.1924
Neðri deild: 66. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 596 í D-deild Alþingistíðinda. (3418)

141. mál, tryggingar fyrir enska láninu

Jakob Möller:

Þeir eiga oft erfitt með það, jafnaðarmennirnir, að gera greinarmun á hugsjón og veruleik, og svo fer nú hv. 2. þm. Reykv. (JBald). Honum virðist hafa sjest yfir það, að þótt viðskiftagrundvellinum væri breytt að óskum hans, þá yrðu það þrátt fyrir alt tómir einstaklingar, sem stæðu fyrir fyrirtækjunum og „bröskuðu“ með þau. Þegar menn fara í hring, þá er það til að ná sem bestu verði á vörunum. Svo var það um fiskhringinn, enda gekk alt vel í byrjun og varan hækkaði í verði. Hjeldu menn, að þessi samtök væru hið mesta þjóðráð, og tóku að spenna bogann, — en hann brast svo bara einn góðan veðurdag. Ef samskonar verslun væri rekin fyrir ríkið, þá myndi hún sjálfsagt reyna að ná hæsta verði og yfirleitt fara svipað að. En eru þá nokkrar líkur til, að útkoman yrði önnur? Það er jú líklegt, að þeir, sem annast slík fyrirtæki fyrir það opinbera, grípi einmitt til sömu ráða og einstaklingamir gera fyrir sína eigin hönd. Þessvegna er svo hætt við, að niðurstaðan yrði nokkuð svipuð. Það er nú svo um fiskhringinn, að hann var í rauninni mjög öflugur, og var það, að hann fjell, ekki öðru að kenna en samkepni annara landa á heimsmarkaðinum. Og í rauninni var mjög erfitt að sjá þetta fyrir og hindra það. Árið 1918 var aðstaðan sjerstaklega góð, sökum þess, að Svíar voru þá í hálfgerðu svelti og gátu hvergi fengið síld nema hjer, en þar við bættist, að framleiðslan var þá svo lítil, að hvergi nærri fullnægði Svíum, svo að hægt var að setja á síldina það verð, sem mönnum sýndist. Árið 1919 var framleiðslan gífurlega mikil, og hlaut síldin því að falla. Það var þetta og þessu líkt, sem reið fiskhringnum að fullu.

Eins er um aðra verslun. Gamla einokunarverslunin var stundum rekin af ríkinu sjálfu, og var því rjettnefnd ríkiseinokun. Hún var því í rauninni sama eðlis og sú ríkisverslun, sem nú er rekin hjer, og sú verslun, sem hv. 2. þm. Reykv. (JBald) vill að verði rekin hjer. Á hinu furða jeg mig ekkert, að hverjum þyki sinn fugl fagur; það hefir löngum verið svo og verður sjálfsagt áfram. Hv. 2. þm. Reykv. (JBald) má t. d. ekki halda, að málssvörum gömlu einokunarinnar hafi ekki þótt hún boðleg í alla staða, eða heldur hv. þm., að hún hafi verið fordæmd af öllum? Nei, íhaldsmennirnir, sem að þessu leyti má kalla sósíalista þeirra tíma, hafa víst verið alveg eins hneykslaðir, þegar einokuninni var hallmælt, eins og þeir eru, sem nú taka svari hennar.