06.05.1924
Neðri deild: 66. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 598 í D-deild Alþingistíðinda. (3419)

141. mál, tryggingar fyrir enska láninu

Tryggvi Þórhallsson:

Það munar ekki um einn kepp í sláturtíðinni, og þá sjálfsagt ekki heldur, þótt jeg bæti örfáum orðum við alt það, sem nú hefir verið sagt. Því vil jeg þó lofa að vera stuttorður.

Það er eitt atriði viðvíkjandi fiskhringnum, sem jeg vildi minnast á, og þar er jeg ósammála báðum þeim hv. þm., sem um hann hafa deilt. Mjer fanst það sorglegt, að hringurinn skyldi kollsteypast, en einkum vegna þess, að það var rjett braut, að töluverðu leyti, sem þá var verið að fara inn á. Jeg hygg, að ógæfan mikla í framkvæmd þessa fyrirtækis hafi verið sú, að það var lokað, og að það var ekki eingöngu rekið með hag framleiðenda fyrir augum, heldur hagsmuni kaupmanna líka. En líklega var það þó stærst ógæfa, að útlendur maður var fenginn til þess að veita fyrirtækinu forstöðu, sem sjálfur var ekki framleiðandi og ef til vill hafði ekki fyrst og fremst hagsmuni framleiðenda fyrir augum, heldur hitt, að fá sem mestar prósentur sjálfur af versluninni. Þessi ógæfa er því þyngri, af því að hjer voru þeir framleiðendur, sem eiga hlut að máli, að fara út á rjetta braut, — þá, að selja sjálfir vöru sína sem milliliðaminst til neytendanna. En jeg vona, að þótt svona tækist illa til í þetta sinn, þá megi þeim auðnast seinna að standa saman um það að selja framleiðslu sína.