31.03.1924
Neðri deild: 37. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1779 í B-deild Alþingistíðinda. (3443)
62. mál, kosningar í bæjarmálefnum Reykjavíkur
Frsm. minni hl. (Jón Baldvinsson):
Hv. allshn. er mjer ekki sammála um að samþykkja frumvarp bæjarstjórnarinnar óbreytt. Jeg sá því ekki ástæðu til annars en koma fram með þær brtt., sem mjer þóttu vera frv. til bóta. Vil jeg þá fyrst minnast á breytingar og nýja orðun á 1. gr.
Mjer finst engin ástæða til að halda í þessar leifar frá þeim tímum, sem svo eða svo mikil peningaeign var gerð að skilyrði fyrir fullum mannrjettindum. Í sveitarstjórnarlögunum eru ennþá leifar af þessu, þar sem er ákvæðið um, að menn verði að gjalda ákveðna fjárhæð til sveitarinnar til þess að öðlast kosningarrjett í sveitarmálum. Þar er verið blátt áfram að straffa fátæklingana fyrir fátækt sína. Er rjett, að ákvæði þessi verði numin burt, þegar breytingar eru gerðar á þeim lögum.
Það er dálítið til í því, að erfitt sje að skera úr, hverjir skuli hafa kosningarrjett og hverjir ekki, eins og bæjarstjórnin hefir gengið frá 1. gr. frv. En sannleikurinn er sá, að það hefir í raun og veru engin áhrif á kosningar í bænum, þó að öllum sje veittur rjetturinn. Og þeir menn, sem um er að ræða, hafa svo mikið saman við það opinbera að sælda, að mjer finst eðlilegt, að þeir hafi íhlutunarrjett um, hvernig farið er með opinber mál. Og þó að mök þeirra við sveitarstjórnina sjeu dálítið leiðinleg, þá ber þess að gæta, að í flestum tilfellum er það ekki þeim sjálfum að kenna.
Þá vil jeg fella það burt úr lögunum, að aðeins þeir hafi kosningarrjett, sem hafa óflekkað mannorð. Það atriði er nú orðið svo óákveðið, að jeg tel enga ástæðu til að halda í það. Tökum t. d. það, að vínsali, sem brotið hefir lög hvað eftir annað, hefir kosningarrjett. En hefir hann óflekkað mannorð í almenningsálitinu? Jeg veit ekki, hvað hv. þm. finst um það. En eins og jeg hefi sagt, hefir hann kosningarrjett, af því að hann hefir ekki verið dæmdur fyrir glæp, sem lögin kalla eitt svívirðilegt að almenningsáliti.
Þá er eitt meginatriðið í brtt. mínum það, að allir, sem eru 21 árs að aldri eða eldri, hafi kosningarrjett. Jeg álít, að þessi breyting hljóti að koma mjög bráðlega, þó hún ekki komi nú, enda mælir öll sanngirni með því. Þegar menn hafa náð 21 árs aldri, hafa þeir fengið almenna mentun og öðlast öll önnur rjettindi þjóðfjelagsins en kosningarrjettinn. Þá mega þeir t. d. reisa bú og kvongast, og það er ekki ábyrgðarminna atriði. Svo má benda á það, að ungt fólk er áhugameira yfirleitt um opinber mál en það eldra. Er því síður hætt við, að það láti leiðast af öðrum, og líklegra, að það fylgi fremur málefnum en mönnum. Má og benda á það, að víða um lönd er kosningarrjetturinn miðaður við 21 árs aldur. Í Bretlandi hafa karlmenn kosningarrjett 21 árs gamlir, og nýlega hefi jeg lesið í erlendu blaði, að í neðri málstofu enska þingsins sje nú til umræðu frv. um kosningarrjett handa kvenfólki 21 árs að aldri í Finnlandi er miðað við 21 ár og í Svíþjóð við 22 ár.
Þá hefi jeg minst á brtt. mínar við 1. gr. Hinar eru smávægilegri. Brtt. við 2. gr. gengur út á að gera hana skýrari, með því að vitna til 3. gr. Án þeirrar breytingar mætti líta svo á, sem greinarnar kæmu í bág hvor við aðra. Þá vil jeg bæta því við 3. gr., að þeim sje á kjördegi gefinn kostur á að kjósa, sem sanna fyrir kjörstjórn, að þeir hafi rjettindi til þess, þó að þeir hafi fallið niður við samningu kjörskrár. Viðbótarkjörskrá er ekki fullsamin fyr en 14 dögum fyrir kosningar, og getur verið eðlilegt, að menn, ýmsra ástæðna vegna, hafi ekki athugað, hvort nafn þeirra stendur á skránni. Er þá hart, að þeir fái ekki að kjósa á kjördegi, þó að af vangá hafi fallið burt nafn þeirra. Skil jeg ekki í því, að mikil töf þurfi að verða á kjördegi, þó að þeir fái að njóta rjettar síns, ef þeir sanna skjallega, að þeir hafi hann. Sje jeg ekki annað en rjett sje að gera þessa breytingu, því að þetta hefir í raun og veru verið haft svona við kosningar að undanförnu hjer í bænum.
Annars skal jeg láta þess getið, að jeg er samþykkur sumum brtt. hv. meiri hl. allshn., en jeg sje ekki ástæðu til að fara út í það frekar. Það sjest svo hvort sem er við atkvgr., hverjum þeirra jeg fylgi.
Hv. frsm. meiri hl. gat þess, að rjettindamissirinn væri hemill á menn til þess, að þeir hjeldu sjer frá sveit. En getur þessi hemill ekki gert ógagn? Er ekki ástæða til að ætla, að í sumum tilfellum leggi fólkið of hart að sjer og sínum til þess að verjast sveit? Og gangi menn svo langt í því, að börn þeirra verði aumingjar, máske alla æfi, fer þá hemillinn ekki að verða athugaverður? Hvort mundi þá borga sig betur fyrir sveitarfjelögin að leggja heimilunum, án þess að foreldrarnir mistu rjettindi, og fá þaðan svo nýta og góða borgara, eða að leggja þeim ekki og þurfa svo að sjá fyrir börnunum að meira eða minna leyti alla þeirra æfi?
Jeg hefi áður minst á það, að jeg lít svo á, að það hafi engin áhrif á kosningar að veita öllum kosningarrjett, hvort sem þeir hafa þegið af sveit eða ekki. Nú eru hjer í bænum 8–9 þúsund manns, sem hafa kosningarrjett til bæjarstjórnar, og eftir tillögum hv. meiri hl. allshn. verða þeir nokkuð á 11. þúsund, þar sem fjölda margt gamalt fólk, sem kýs til Alþingis, greiðir ekkert útsvar. Sem sagt, jeg lít svo á, sem samþykkja beri brtt. mína við 1. gr. En verði þær ekki samþyktar, þá halla jeg mjer að frv. bæjarstjórnarinnar eins og það er, þó að mjer líki það ekki allskostar.