01.05.1924
Neðri deild: 60. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1291 í C-deild Alþingistíðinda. (3460)
139. mál, almenn sjúkratrygging
Jón Baldvinsson:
Jeg tók ekki eftir, að hv. flm. (JS) hafi komið með neina till. um að vísa málinu til nefndar. (JS: Já, mjer láðist að stinga upp á því, að því yrði vísað til allshn.) Það er rjett hjá hv. flm. (JS), að við verðum að haga þessum málum eftir staðháttum hjer að mestu leyti, þótt gott gæti verið að hafa hliðsjón af fyrirkomulaginu hjá öðrum þjóðum. Í þessu frv. er annars tvent, sem jeg hefi einkum að athuga við. Annað er það, að hjer er um nefskatt að ræða, og hitt er, að menn eiga ekki óskoraðan rjett til framlags úr sjóðnum, heldur myndi verða að sækja um það til nefndar, sem með úthlutunina hefði að gera og sem úthlutaði af handahófi, nokkuð svipað eins og fátækrastjórnir úthluta nú úr ellistyrktarsjóðum. Það er þó einkum fyrra atriðið, sem jeg set fyrir mig, að hjer er um nefskatt að ræða. Þar sem gert er ráð fyrir, að fje úr þessum sjóði verði, meðal annars, varið til berklavarna, og þeim útgjöldum þá að mestu ljett af ríkissjóði, þá myndi þetta koma ranglátlegar niður heldur en eins og það er nú.
Í ríkissjóðinn greiða menn eftir því, hvort þeir hafa miklar eða litlar tekjur, en í þennan sjóð er gert ráð fyrir að allir greiði jafnt, fátækir sem ríkir. Þetta er í mínum augum agnúi. — Að öðru leyti virði jeg viðleitni háttv. þm. (JS), að hann hefir viljað bæta úr á þessu sviði, sem sannarlega er engin vanþörf. En á fyrirkomulagið felst jeg ekki. Það er aðeins einn sjóður, sem jeg get fallist á, að allir greiði þannig jafnt í, og það er ellistyrktarsjóðurinn. Um þennan sjóð er alt öðru máli að gegna. Ef aðalverkefni hans verður að taka að sjer berklavarnirnar fyrir ríkissjóð, þá verður aðstaða hinna fátæku þar með gerð talsvert verri en hún nú er.
Jeg geri ekki ráð fyrir, að þetta mál komist fram á þessu þingi, og verður því nægur tími til síðar að koma fram með tillögur til breytinga. Vona jeg, að finna megi einhvern viðunanlegan grundvöll til að byggja á í þessu efni.