19.03.1924
Neðri deild: 27. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 316 í C-deild Alþingistíðinda. (3467)

93. mál, botnvörpukaup í Hafnarfirði

Jón Kjartansson:

Það var önnur fyrirspurn, sem jeg vildi beina til hv. frsm. sjútvn. (ÁF), hvort hæft sje í því, sem heyrst hefir, að maður nokkur í Hafnarfirði ætli, eða væri í þann veginn, að taka á leigu 4 enska togara. Mjer skilst, að þetta frv. sje aðallega fram komið til þess að bæta úr atvinnuskorti Hafnfirðinga. En ef þessir 4 togarar koma þangað, þá virðist mjer, að úr því sje bætt með þessu. Annars virðist mjer það illa farið, ef Íslendingar eru að taka á leigu útlend skip yfir aðalvertíðina, og taka aflann, þegar hann er sem mestur, og spilla þannig fyrir landsmönnum. Þótt þarna kunni að vera virkileg leiga nú, má búast við, að þessi undanþága frá fiskiveiðalögunum sje skaðleg, og mundi með tímanum verða mjög misbrúkuð.

Hvað snertir ábyrgð ríkissjóðs fyrir þessi væntanlegu útgerðarfjelög í Hafnarfirði, þá er mjer illa við það, að ríkið sje að ganga í ábyrgð erlendis fyrir einstaka menn eða fjelög. Jeg veit heldur ekki, hvort erlendir bankar leggja mikið upp úr slíkri ábyrgð ríkisins, og ef svo er ekki, þá getur það orðið til þess að veikja lánstraust ríkisins erlendis, ef menn eru að hampa henni í bönkum þar. Hitt virðist mjer eðlilegt, að ríkisstjórnin hlutist til um að fá innlenda banka til þess að styrkja þetta fyrirtæki; það virðist mjer besta leiðin.

Jeg mun svo ekki fara fleiri orðum um málið að sinni. En jeg vildi gjarnan fá svar við fyrirspurn minni um þessa bresku togara. Jeg tel það illa farið, að útlendingar komi hingað til þess að gera út hjeðan, þar sem þeir geta farið 3 ferðir á okkar bestu mið og lagt hjer upp aflann, í stað þess að fara aðeins eina ferð, ef þeir þyrftu að sigla beint til Englands jafnóðum. Jeg tel og mjög vafasamt, hvort þetta geti staðist vegna fiskiveiðalaga vorra. Og mjer skilst, að þau lög væru lítils virði, ef slík „leiga“ væri leyfð. Það mun ekki hafa verið ætlunin með fiskiveiðalögunum, að þessi leiga væri leyfð, og tel því illa farið, að nú skuli vera komið út á þessa braut.