19.03.1924
Neðri deild: 27. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 325 í C-deild Alþingistíðinda. (3475)
93. mál, botnvörpukaup í Hafnarfirði
Jón Þorláksson:
Jeg kvaddi mjer hljóðs vegna þess, að mjer fanst hæstv. atvrh. (KlJ) fara allhvössum orðum um skoðun hv. þm. N.-Ísf. (JAJ) í landhelgismálinu, — skoðun, sem hann stendur alls ekki einn uppi með. Háttv. þm. N.-Ísf. hefir gerst talsmaður þeirrar skoðunar, að vjer eigum, eftir því, sem oss er frekast unt, að halda botnvörpuveiðunum hjer við land fyrir oss sjálfa, íbúa landsins, en verjast því svo sem vjer frekast getum, að landslögum rjettum, að erlendir menn fái að neyta aðstöðu landsmanna sjálfra til þess að keppa við þá í þessari atvinnugrein. Jeg er viss um, að allir erum vjer þessari grundvallarstefnu hv. þm. N.-Ísf. samþykkir og fylgjandi, þó að oss geti greint á um það, hversu langt sje unt að fara í framkvæmd þessarar stefnu. En það nær engri átt að vera að kasta hnútum að þeim mönnum, sem mest hafa barist fyrir því að vernda náttúrugæði hafsins í kringum landið handa landsmönnum sjálfum, og vera að brigsla þeim, sem þegar eru byrjaðir að stunda hjeðan togaraútgerð, um það, að þeir vilji hafa einokun á þeirri atvinnugrein fyrir sjálfa sig. Jeg tel slíkt vera óverjandi. Stefnan gengur eigi út á annað en að tryggja þessa atvinnugrein handa innlendum mönnum. Jeg er því hissa á þessum aðdróttunum hæstv. atvrh. (KlJ), og jeg þykist þess fullviss, að þegar hann hugsar sig betur um, muni hann sjá, að þessi verður að vera stefna allra landsmanna, enda þótt hann hafi ekki á þessari stundu getað verið okkur sammála um, hversu fast við gætum fylgt þessari stefnu fram.