19.03.1924
Neðri deild: 27. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 328 í C-deild Alþingistíðinda. (3478)
93. mál, botnvörpukaup í Hafnarfirði
Frsm. (Ágúst Flygenring):
Háttv. 4. þm. Reykv. (MJ) kvartaði undan því, að þetta mál væri svo illa undirbúið, að ilt væri að átta sig á því. Jeg get ekki fallist á þetta, því bæði er allítalega tekið fram í greinargerðinni, hvernig málinu sje háttað, og auk þess þykist jeg hafa skýrt það nokkuð nánar í framsögu minni. Jeg tók það þar fram, að ríkið ætti að geta látið sjer nægja að þessi fjelög legðu fram 1/3 kostnaðar, þegar því er veðsett alt á eftir. Að öðru leyti er það lagt í hendur ríkisstjórnarinnar sjálfrar að setja þau skilyrði fyrir ábyrgðinni, sem henni þykja tryggileg. Myndi stjórnin ekki ganga frá þessu fyr en hún sæi lánsskilyrði bankanna, og myndi hún auðvitað líta á beggja hag, bæði útvegsmanna og ríkissjóðsins, því auðvitað kemur ekki til ríkisins kasta að borga, ef útvegsmennirnir standa í skilum. — Það er hjer alls ekki að ræða um að gefa mönnum skilyrðislaust ríkissjóðsábyrgð til þess að fara með í vasanum út um öll lönd og sýna hverjum sem vill. Það er tilætlunin, að vel og rækilega verði frá þessu gengið, og ætti ríkisstjórninni að vera trúandi fyrir því.
Jeg vjek að því áðan, að óvíst væri, að þessi heimild gæti komið að gagni. En það væri þó altaf viðfeldin viðurkenning af þingsins hálfu, að það vildi þó sýna einhvern lit á því að styrkja þessi fyrirtæki, til þess með því að ráða bót á vandræðum þessa kaupstaðar, sem með fiskiveiðalögunum er sviftur atvinnu sinni. Hitt sagði jeg aldrei, að þetta mundi ekki koma að notum. Jeg sagði aðeins, að það gæti komið fyrir, að það yrði ekki að notum, með öðrum orðum: jeg tel alls ekki vist, að það komi að beinum notum.
Frv. þetta ætti annars að geta orðið til þess að friða samvisku þeirra háttv. þm., sem vilja róa að því öllum árum að kaupa innlend skip, til þess að atvinnubresturinn neyði okkur ekki til þess að skjóta skjólshúsi yfir útlendinga, enda er það vitanlega eina ráðið að auka innlenda flotann og þar með þau pláss og húsnæði, sem nú stendur autt í Hafnarfirði. Nú er tækifærið til að sýna þann vilja í verki. Því það er víst, að útlendingum verður aldrei til lengdar bægt frá hjerlendum atvinnurekstri, nema hægt verði að veita fólkinu nægilega atvinnu af eigin ramleik. Það er nú einu sinni svo, og verður væntanlega áfram, að ef einhver er sjer ekki sjálfum nógur, þá verður hann að leita til annara. Og hvað Hafnarfjörð snertir, þá get jeg fullyrt, að þetta verður gert.
Að lokum vil jeg taka það fram, þótt jeg annars ógjarnan vilji aftur gefa mönnum tilefni til hneykslunar, að ef jeg á að segja eins og mjer býr í brjósti, þá tel jeg það betra og rjettara að heimila útlendingum þennan rekstur, með undanþágu, t. d. eins og jeg fór fram á í þingbyrjun, en að horfa á það með opnum augum ár eftir ár, sem á sjer stað nyrðra, að lögin sjeu brotin á þann hátt, sem af banninu leiðir, — banninu um sölu á aflanum, sem óneitanlega er afaróeðlilegt.