19.03.1924
Neðri deild: 27. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 333 í C-deild Alþingistíðinda. (3481)

93. mál, botnvörpukaup í Hafnarfirði

Atvinnumálaráðherra (KlJ):

Jeg vona, að hv. 1. þm. Reykv. (JÞ) kannist við það, að jeg er ekki vanur því í ræðum mínum að fara út fyrir það mál, sem er á dagskrá. Er þetta þó næsta algengt hjer, því oft og iðulega hafa umr. snúist þannig, að vart er hægt að vita af þeim, hvaða mál hafa verið til umr. Jeg hefi samt til þessa reynt að sneiða hjá þeirri þingvenju, eins og mjer hefir verið unt. En að þessu sinni verð jeg að telja, að mjer hafi verið gefin fylsta ástæða til þess að minnast á einkarjett, þar sem hv. þm. N.-Ísf. tók það beint fram, að ef bætt yrði við þarna 6 togurum, þá væri viðbúið, að framleiðslan á fiskinum yrði of mikil fyrir markaðinn.

Jeg skal annars ekki fara frekar út í þetta að sinni, því jeg býst við því, að málið verði látið ganga til 2. umr., og fæ jeg þá tækifæri til að skýra frá mínum skilningi á lögunum.