06.05.1924
Efri deild: 64. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2369 í B-deild Alþingistíðinda. (3515)

149. mál, gengisskráning og gjaldeyrisverslun

Jónas Jónsson:

Jeg er ekki fyllilega ánægður með frv. eins og það liggur fyrir, enda þótt jeg búist við að greiða því atkvæði. Það kom fram í hv. Nd. ósk um það, að fleiri menn ættu sæti í nefndinni, og að verslunarstjettin hefði íhlutunarrjett, ekki einungis um peningaverslunina sjálfa, heldur og um gjaldeyrisverslun þeirra manna, er flyttu inn og út. Um þetta hefir ekki orðið samkomulag, og verður við það að sitja. Ástæðan til þess, að jeg fylgi frv., er sú, að þetta er nálega eina tilraun þingsins til þess að hafa áhrif á gengi íslensku krónunnar. Tillagan er vafasöm, en gæti þó, ef lán væri með, orðið til einhvers gagns, og það fer vitanlega eftir því, hvernig lögin verða framkvæmd. Fyrir ríkissjóð og einstaka menn er lággengi og óstöðugt gengi hið mesta böl. En ástæðuna til þess, að slíkt gengi hefir komist á, vita allir, þó að það hafi ekki verið viðurkent af kaupmannablöðunum, — sem sje það, að við höfum eytt meira en við höfum aflað. Það er alkunna, að meiri hluti þingsins hefir hallast að því að gera þróttlausar ráðstafanir til þess að hefta innflutning á óþarfavarningi, vegna þess, að ríkissjóður hafi ekki ráð á því að missa tollinn. Ef krónan fellur, þá á stjórnin sennilega að leyfa innflutning á fleiri vörutegundum, til þess að auka tolltekjurnar. Þetta er ákveðið, og því verður ekki breytt nú, — en jeg skal játa það, að þó að stjórnin reyni að fylgja fram einhverjum innflutningshöftum, þá verður það mjög erfitt, nema hún hafi einnig eftirlit með gjaldeyrinum. Annars skal jeg taka það fram, að mjer finst höfuðgalli frv. vera sá, að ekki er ákveðið í 4. og 5. gr., að nefndin skuli hafa fullan umráðarjett yfir öllu því, sem inn kemur af erlendri mynt, Getur farið svo, að ef bankastjórnirnar og landsstjórn álíta, að bankarnir fái meginhluta allrar erlendrar myntar, að þá verði ekki hugsað meira um það, og að margir menn fari utan um bankana um kaup á óþarfa vöru, sem þeir gætu ekki, ef eftirlitið væri nógu strangt. Þetta á að skýra afstöðu mína til frv. Jeg skoða það spor í rjetta átt, þó að jeg hinsvegar telji það þýðingarlítið, ef heimild stjórnarinnar verður ekki notuð. Jeg geri ráð fyrir því — og beini því til hv. 1. landsk. þm. (SE), — að hann láti ekki kenningar um frjálsa eða ófrjálsa verslun hindra sig í því að stuðla að því, að landið fái fult vald yfir öllum íslenskum gjaldeyri erlendis.