03.03.1924
Neðri deild: 13. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 19 í C-deild Alþingistíðinda. (3519)

9. mál, hjúalög

Pjetur Ottesen:

Jeg vildi aðeins gera stutta athugasemd út af þessari einkennilegu tillögu, sem hjer hefir komið fram. Jeg veit ekki, hvernig á að skilja það, að fara nú að vísa þessu máli enn til stjórnarinnar, sem hún hefir nú flutt á tveim þingum, svo hún geti leitað álits sýslunefnda um það. Mjer finst þetta ekki svo flókið löggjafarmál, að þingið ætti ekki að geta ráðið fram úr því án þess að leita álits sýslunefnda um það. Það hefir reyndar verið stundum gert að leita álits sýslunefnda um mál, sem alveg eru sjerstaks eðlis, en hjer er um alment löggjafarmnál að ræða, sem einskis frekari undirbúnings krefst og jeg sje engum vandkvæðum bundið að greiða nú þegar atkv. um. (TrÞ: Hvernig var það með korneinkasöluna?). Eins og kunnugt er, er það almennur vilji að spara, og hafa ýmsar tillögur komið fram í þá átt. En það er sannarlega enginn sparnaður að því, að láta nú prenta fleiri hundruð eintök af þessu frv. og senda út um land. Því jeg býst ekki við, að stjórnin hafi haft upplagið svo stórt, að það hafi verið miðað við slíka ráðstöfun.