05.03.1924
Efri deild: 11. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1139 í B-deild Alþingistíðinda. (373)

8. mál, hegningarlög

Frsm. (Jón Magnússon):

Jeg get vísað til ástæðna stjórnarinnar fyrir frv. þessu. Þar er tekið fram, að breyting þessi sje gerð vegna tilmæla, sem komu um það við umr. um lögin um varnir gegn kynsjúkdómum hjer í þinginu í fyrra.

Nefndin sá að vísu, að frv. hefði mátt vera orðað einfaldar, en með því að orðalag þess er í samræmi við orðalag hegningarlaganna yfirleitt, sá hún ekki ástæðu til að gera breytingar á frv. þar að lútandi. Sömuleiðis hefði mátt orða ákveðnar „önnur atlot“ í 2. gr. frv., en getur þó varla misskilist eins og það er, og því hefir nefndin látið það standa óhaggað og leggur til, að frv. sje samþykt óbreytt.