12.03.1924
Efri deild: 17. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1143 í B-deild Alþingistíðinda. (395)

17. mál, eftirlit með lyfjabúðum o. fl

Frsm. (Björn Kristjánsson):

Eins og kunnugt er, var frumvarp það, sem hjer er til umræðu, borið fram af stjórninni, og segir í ástæðunum fyrir því, að kostnaður við eftirlit lyfjabúðanna muni ekki vera minna en 2500 kr., og þykir rjett, að lyfsalarnir beri þann kostnað. Leggur stjórnin því til, að kostnaði þessum sje ljett af ríkissjóði og lyfsalarnir sjálfir látnir greiða hann, eins og t. d. tíðkast í Danmörku.

Fjárhagsnefnd neðri deildar hefir lagað frv. þetta að því leyti, að hún hefir tekið skýrar fram, að gjald þetta renni í ríkissjóð, og ennfremur bætt því við, að það megi taka lögtaki. Jafnframt hefir hún athugað, hvort ekki væri ástæða til að hafa gjaldið mismunandi á hinum einstöku lyfjabúðum, en ekki sjeð ástæðu til þess. Leggur hún því til, að gjaldið sje alstaðar jafnt, sem sje 250 kr. á hverri lyfjabúð. Verður það því í alt 2500 kr., því lyfjabúðirnar eru nú 10.

Fjárhagsnefnd efri deildar hefir og athugað frv. þetta og komist að sömu niðurstöðu. Leggur hún því til, að hv. deild samþykki það eins og það liggur fyrir.