28.02.1924
Neðri deild: 10. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1149 í B-deild Alþingistíðinda. (406)

38. mál, gengisviðauki á ýmsa tolla og gjöld

Jón Þorláksson:

Það er ekki hægt að segja annað um frv. það, sem hjer er fram komið, en að það sje fyllilega rjettmætt. Það var sjálfsagt, að hæstv. stjórn yrði að leggja fram eitthvert tekjuaukafrv. eins og fjárhagnum er nú komið. Er jeg henni sammála um, að eins og stendur er þess ekki að vænta, að hægt sje að ná tekjuauka, nema með aðflutningsgjaldi á aðfluttum vörum. Hitt finst mjer aðfinsluvert, að slík frv. sem þetta sjeu látin flækjast svo lengi í þinginu án þess þau sjeu rædd eða sett í nefnd. Vitanlegt er þó, að kaupmenn og aðrir, sem verða þess vísir, að tollanna sje von, nota tímann til þess að viða sem mest að sjer af vörum þeim, sem skattarnir leggjast þyngst á, og bíður ríkissjóður við það skakka mikinn. Mjer þætti best farið, að slík frv. lægju í sem mestu þagnargildi uns þau kæmu til umræðu, og yrðu svo afgreidd í einni svipan, svo fresturinn yrði ekki misnotaður.

Annars er jeg fyrir mitt leyti hræddur um, að frv. gangi ekki nógu langt til þess að útvega þann tekjuauka, sem nú þarf til að rjetta hag landsins.

Viðvíkjandi ræðu hv. samþingismanns míns, 2. þm. Reykv. (JBald), verð jeg að segja það, að það eru ekki þeir, sem samþykkja nýjar álögur landssjóði til tekna, sem íþyngja almenningi með óbærum byrðum, heldur hinir, sem nú og fyrri beita sjer fyrir eða samþykkja ný útgjöld, sem valda því, að fjárhagurinn er eins og hann er. Þessir menn — og hv. þm. (JBald) getur stungið hendinni í sinn eigin barm, hann er ekki sístur þeirra — þeir íþyngja almenningi með því að skapa ný útgjöld fyrir ríkissjóð. Því aldrei er farið lengra í því efni að draga fje í landssjóðinn með tollum en nemur útgjöldum hans.

Jeg segi þetta til þess að enginn þurfi að hafa samviskubit af þeim, sem nú eiga að takast það leiðinlega verk á hendur að afgreiða nýtt tollafrv. til tekjuauka. Það er aðeins bein afleiðing af því, sem þingið er búið að gera áður.

Jeg tel ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um málið að svo komnu. Vildi jeg óska þess, að umræðunni yrði lokið á þessum fundi, svo ekki dragist lengur að vísa málinu til nefndar.

Um það, sem hv. 2. þm. Reykv. var að tala, að bæta þyrfti gengið, hirði jeg ekki að ræða. Eitt ráðið til þess er að koma jöfnuði á tekjur og gjöld ríkissjóðs; takist það ekki, er öll viðleitni í þá átt að bæta gengið algerlega árangurslaus.