28.02.1924
Neðri deild: 10. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1152 í B-deild Alþingistíðinda. (408)
38. mál, gengisviðauki á ýmsa tolla og gjöld
Fjármálaráðherra (KlJ):
Mjer kom ekki á óvart það, sem hv. 2. þm. Reykv. (JBald) sagði. Var mjer fyllilega kunnugt um skoðanir hans á skattamálum frá fyrri tíð, að hann vill hafa beina skatta, en enga óbeina. Hv. þm. hefir og gert tilraun til að fella sykurtollinn úr gildi, en ekki tekist, því að ríkissjóður getur ekki án hans verið. Hv. þm. sagði, að sykur- og kaffitollurinn hefðu aðeins verið settir til bráðabirgða, og eins væri um hækkanir þeirra. Er það rjett hvað hækkanirnar snertir; það var einkanlega tekið fram um þá, er á kom 1907, en svo mun ekki hafa verið um frumtollana; þeir hafa átt að standa. Og ekki hefir verið hægt að nema burtu hækkanirnar, því að útgjöld ríkissjóðs hafa altaf aukist ár frá ári, og því fremur orðið að bæta við nýjum tollum en leggja þá niður, er fyrir voru.
Hv. þm. mintist á, að stjórnin hefði lofað, er hún tók við völdum, að reyna að hækka gildi krónunnar. En öllum er það vitanlegt, að hún hefir ekki getað við það ráðið. Hv. þm. hefir ekki heldur, svo jeg viti, komið sjálfur fram með nokkur ráð til þess.
Hv. sami þm. dró í efa, hvort samanburður tollanna væri rjettur. Jeg hefi hann frá Jóni Krabbe skrifstofustjóra, og geng því að því vísu, að hann sje alveg rjettur.
Hvað það snertir, hvort kaupgeta vor sje sú sama og nágrannalandanna, er því að svara, að kaupgeta Svía er miklu meiri, en Finna aftur engu betri, og eru þó tollar hjá þeim miklu hærri en hjá okkur, þótt frv. þetta næði fram að ganga. — Tel jeg ekki, að jeg þurfi að svara hv. þm. meiru.
Hv. 1. þm. Reykv. (JÞ) tók vel í málið; honum þótti það eitt að, hvað frv. flæktist lengi í þinginu, svo að kaupmenn gætu dregið að sjer vörur í tíma. Jeg er því sammála, að æskilegast væri að slík frv. sem þetta þyrftu ekki að bíða, að vissa væri fyrir því, að hægt væri að samþykkja þau á einum degi. En hræddur er jeg um, að erfitt væri að koma því í framkvæmd eins og þingið er skipað.
Það hefir eitt sinn áður verið reynt að koma tollhækkun á að þjóðinni óvarri, en það tókst ekki. Var þó frv. það prentað á næturþeli og prófarkirnar lesnar þá — það gerði jeg sjálfur — en áður en sól var af lofti næsta dag, vissu ýmsir kaupmenn um frv., hvernig svo sem það hefir kvisast. Er mjög erfitt að halda frv. alveg leyndum áður en þau skella á.
Hv. þm. var að tala um, að ekki væri gengið nógu langt með þessu frv. til að afla tekjuauka. Það er satt, að landið þarfnast meiri tekna, ef duga skal til fulls, en hóflega verður þó að fara og ekki íþyngja mönnum um of. Mun það rjett hjá hv. 2. þm. Reykv., að þetta sjeu nógar álögur í bráðina.