15.03.1924
Neðri deild: 24. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1175 í B-deild Alþingistíðinda. (422)
38. mál, gengisviðauki á ýmsa tolla og gjöld
Sigurjón Jónsson:
Hv. 3. þm. Reykv. (JakM) tók það fram, að hann myndi koma með brtt. við frv., þess efnis, að verðhækkunartollurinn yrði ekki látinn ná til nokkurra nauðsynjavara, svo sem kornvöru, járnvöru, kola og salts. Brtt. mín á þskj. 67 tekur upp síðustu liðina af þessum. Það, sem fyrir mjer vakir, er það, að kol og salt eru vörur, sem nær eingöngu snerta annan aðalatvinnuveg landsmanna. Á hinn bóginn kemur tollurinn á öðrum vörutegundum svipað niður á alla atvinnuvegina, eins og hv. 1. þm. N.-M. (HStef.) tók fram í sinni ræðu. En samþykkjum vjer aftur á móti verðhækkunartollinn á kolum og salti þá er þar með lagður beinn skattur á annan hluta landsmanna. Og til að koma í veg fyrir þá ósanngirni, hefi jeg leyft mjer að bera fram brtt. á þskj. 67, og vona jeg, að hv. deild sjái sjer fært að samþykkja hana.