15.03.1924
Neðri deild: 24. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1197 í B-deild Alþingistíðinda. (436)
38. mál, gengisviðauki á ýmsa tolla og gjöld
Hákon Kristófersson:
Jeg gerði ekki ráð fyrir, að hv. 1. þm. Reykv. (JÞ) gengi út frá því, að till. mín væri á persónulegum rökum bygð, og furðar mig á þeim orðum hans, að ætla, að við hv. 1. þm. N.-M. (HStef) og jeg gerum þetta til þess að þóknast einhverjum. Jeg segi þá aðeins við hv. 1. þm. Reykv.: „Maður, líttu þjer nær; liggur í götunni steinn.“