15.03.1924
Neðri deild: 24. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1199 í B-deild Alþingistíðinda. (438)

38. mál, gengisviðauki á ýmsa tolla og gjöld

Frsm. meiri hl. (Jón Þorláksson):

Jeg hefi orðið að ræða till. hv. minni hl. á þeim grundvelli, sem með þeim eigi að fella stjfrv. Jeg veit ekki, hvernig jeg hefði tekið í málið, ef fram hefðu komið till. um að fella niður tollhækkunina á helstu nauðsynjavörum. En slíkar till. hafa ekki komið fram.