10.03.1924
Neðri deild: 19. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1219 í B-deild Alþingistíðinda. (465)

20. mál, kennaraskóli

Pjetur Ottesen:

Það kemur fram nú sem fyr, að þm. Borgf. er allmikill þyrnir í augum þeirra angurgapa, sem hæst hafa talað um fræðslumálin á síðustu þingum. Þetta fær ekki á mig nú fremur en áður, og mun jeg ekki hirða að tefja tímann með því að fara nú að verja afstöðu mína yfirleitt til þeirra mála á undanförnum þingum.

Það var að heyra á hæstv. forsrh. (SE), að hann teldi sjálfsagt, að þingið sinti tillögum milliþinganefndar þeirrar, sem um þessi mál hefir átt að fjalla. Jeg verð nú að líta svo á, að þannig lagaðar geti slíkar till. verið, að ekkert vit sje í að sinna þeim. Og jeg verð að halda því fram, að svo sje í þetta sinn. Það er eins og þessir fræðslumálagarpar sjeu einungis ánægðir, ef nógu miklu fje er varið til fræðslumálanna. Um hitt virðast þeir hugsa minna, hvort fræðslan er að sama skapi; hvort henni sje hagað þannig og hún bygð á þeim grundvelli, að hún komi að verulegum notum. Hæstv. forsrh. talaði um það með mikilli viðkvæmni, að stjórnin hefði orðið að neita sjer um það að leggja allar tillögur milliþinganefndarinnar í skólamálum fyrir þingið. En hæstv. ráðherra kvartar ekkert undan því, þó að stöðva þurfi öll fjárframlög til verklegra framkvæmda í fjárlögum. Hann getur ekki komist við af því að sjá alt strikað út í fjárlögunum, sem miðar að því að efla atvinnuvegina í landinu. Það er og mjög vafasamt, að það taki því eða sje þess vert að tala af svo miklum fjálgleik um fræðslufyrirkomulagið eins og það er nú. Enda er það alkunnugt, að það er stór flokkur manna í landinu, sem er sáróánægður með það og lítur svo á, að lítið hafi fengist fyrir allan kostnaðinn — og það er ekki að vita, hve lengi þau lög standa, sem nú gilda í því efni. Jeg get annars beðið með það að tala um þessi mál í heild þangað til frv. um breytingu á fræðslulögunum kemur til umræðu.

Svo jeg snúi mjer aftur að frv., þá verð jeg að segja það, að mjer þótti hv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ) fara allgeyst. Hann kvað mig tortrygginn og sagði, að jeg hefði átt að koma fyr fram með þessi mótmæli mín. Jeg hafði satt að segja ekki búist við, að neitt af þessum skóla- eða fræðslufrumvörpum kæmist lengra en að þeim yrði vísað til nefndar og lognuðust þar út af, og með því væri sannarlega nóg að gert. En úr því að ferðinni virðist nú heitið lengra, þá get jeg ekki lengur látið málið afskiftalaust. Annars hefi jeg greitt atkvæði gegn þessu frv. við þær tvær umræður, sem búnar eru, svo að hv. þm. (ÁÁ) gat ekki komið á óvart, hver afstaða mín væri. Það er annars engin furða, þótt þeir menn, sem á annað borð hugsa nokkuð um fjárhagsafkomu landsins, væru farnir að verða tortrygnir. Fyrir stríðið voru árleg útgjöld ríkissjóðs um 3 milj. kr. Nú munu þau vera um 7 milj. kr. og hafa komist langt yfir það. Og margir þeir útgjaldaliðir, sem þyngstir hafa reynst, hafa oft sýnst næsta lítilfjörlegir í byrjun. Nei, það er engin furða, þótt menn fari nú að verða tortrygnir, þegar um útgjöld ríkisins er að ræða. Snjóflóðið, er veltir um heilum húsum, fer hægt á stað. Snjóboltinn hleður utan á sig og verður því stærri, er hann veltur lengra. Þessum eiginleikum hafa mörg af þeim útgjöldum verið gædd, sem smeygt hefir verið inn með ýmsum lögum eða á annan hátt undanfarið; það hefir jafnan verið viðkvæðið þetta, að því fylgdi enginn kostnaður — en reynst nokkuð á annan veg, eins og raun ber vitni um. Og svo hygg jeg, að það muni reynast með þetta frv.

Hv. þm. V.-Ísf. sagði, að jeg væri að setja mig upp á móti því, að starfsþrek kennaranna við kennaraskólann væri betur notað. Nei, jeg vildi gjarnan, að það væri notað út í ystu æsar, og sje svo, að þeir geti int meira verk af hendi en þeir nú hafa, væri það vel athugunarvert að gera þeim að skyldu að kenna eitthvað við mentaskólann t. d., og ljetta þar með einhverjum af fóðrunum af þeim, sem þar eru. En að fara að lengja námstímann við kennaraskólann til að kenna þau fræði, sem að litlu haldi mundu koma, — en baka ríkissjóði stórkostnað og nemendum sömuleiðis, og vinnutap í þokkabót, — það álít jeg ekki praktiska aðferð til þess að nota betur starfskrafta kennaranna. Reynslan hefir og sýnt, að því lengur sem fólkið dvelur í skólunum, því frábitnara verður það yfirleitt líkamlegri vinnu, og mundi þetta einnig koma í ljós við þessa breytingu. Það er yfirleitt ískyggilegt mjög, hvað margt af því fólki, sem fer að dvelja í skólum, verður frábitið líkamlegri vinnu, en þess er engin von, að þeir menn, sem ekkert eða lítið þekkja til eða hafa engin kynni af líkamlegri vinnu og gera sjer ekki grein fyrir þýðingu hennar, sjái og skilji þann mikla þjóðarvoða, sem af því stafar, ef slíkt heldur áfram að fara í vöxt.

Hv. þm. V.-Ísf. hjelt því fram við 2. umr. málsins, að ef þessi kensluaukning yrði samþykt, þá myndi kenslan við kennaraskólann í engu standa að baki kenslunni við gagnfræðaskólann á Akureyri og í neðri bekkjum mentaskólans. Þó svo standi á, að hv. þm. er einn kennarinn við þennan skóla, þá vil jeg ekki gera honum neinar getsakir. En það furðar mig, fyrst hann lítur svo stórt á kennaraskólann, ef hann fyndi ekki síðar neina hvöt hjá sjer til þess að skipa þessum kennurum jafnhátt hinum hvað launin snertir, og þess er að jeg ætla ekki ólíklega tilgetið, að til þess muni nú refirnir meðfram vera skornir að knýja þetta fram nú, að hafa þessa góðu aðstöðu á næsta þingi, er launalögin verða tekin til meðferðar. Hv. þm. kannaðist ekki við, að það hefði neinn kostnað í för með sjer, þótt ensku væri bætt við. — Þetta leiðir þó alveg af sjálfu sjer, og hefi jeg gert fulla grein fyrir, að svo hljóti að verða, og verður það alls ekki hrakið.

Það kom alveg spánnýtt hljóð úr horni hjá hv. þm. (ÁÁ), er hann tók að tala um það, að kennarar mundu fúslega borga þann kostnað, sem af þessu leiddi. Spánnýtt kalla jeg það af því, að hingað til hafa þau ein skifti verið ríkissjóðs og kennaranna, að fáir hafa verið þar harðari á stalli en einmitt kennarastjettin, enda ætti að vera hægt að koma því svo fyrir, að þeir þyrftu ekki að vera að kaupa það af ríkissjóðnum að hafa nóg að gera, þó þessu verkefni væri slept. Hv. þm. kvað mig mundu bera lítið skyn á enskunám. Jeg skal játa, að svo geti verið, en jafnframt skal jeg taka það fram, að jeg hefi í þessu efni bygt á skoðun manns, sem vel er að sjer í málinu. Er mjer engin launung á því, að sá maður er einn af kennurum kennaraskólans.

Jeg get annars hlaupið yfir það, sem hv. þm. beindi að mjer og kenslumálaskoðun minni yfirleitt, því það mun ef til vill innan skams koma fram frv., þar sem mjer gefst kostur á að ræða það mál við hann til hlítar. Virði jeg þingsköpin svo mikils, að jeg vil ekki fara að tala um málið frekar en orðið er á svo breiðum grundvelli, þótt hv. þm. hafi annars gefið ástæðu til þess.

Hv. þm. talaði um konu úr Borgarfirði, sem talað hefði öðruvísi en jeg um fræðslumálin. Þetta getur vel verið, og að því leyti, sem hann talaði um gremju í orðum hennar, þá hygg jeg nú samt, að sú gremja hafi stafað af því, að hún hafi orðið fyrir einhverjum vonbrigðum af ríkjandi fræðslufyrirkomulagi, og er það síst að undra, því jeg lít svo á, að vart sje unt að misþyrma börnum meira á annan hátt en þann að láta þau sitja daginn út og daginn inn á hörðum skólabekkjum og svifta þau öllu frjálsræði undir berum himni, svo sem eðli þeirra stendur til. Mun hv. þm. (ÁÁ) ef til vill vera kunnugt um það, að hryggskekkjunni illræmdu, sem nú er svo mjög að færast í vöxt, veldur að dómi læknanna þessi eilífa skólaseta, sem á þessum aldri hefir veiklandi áhrif á bæði líkama og sál. Það er ekki nema eðlilegt, að það brjótist út gremja hjá hverri góðri og umhyggjusamri móður yfir slíkri meðferð á börnum sínum.