19.02.1924
Neðri deild: 3. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1241 í B-deild Alþingistíðinda. (490)

18. mál, afhending á landi til kirkjugarðs í Reykjavík

Forsætisráðherra (SE):

Þetta frv. lá fyrir Alþingi í fyrra og varð þá ekki útrætt. Stjórnin taldi sjálfsagt að leggja það nú á ný fyrir þingið, þar sem kostnaður ríkissjóðs við stækkun kirkjugarðsins í Reykjavík er orðinn æðimikill. Árið 1921 var kostnaðurinn kr. 18214.19, 1922 kr. 5308.15 og í fyrra kr. 8553.75, eða samtals þessi 3 ár kr. 32076.09. Talið er, að þeir grafreitir, sem enn eru ónotaðir, muni nægja til ársloka 1925, eða jafnvel ekki lengur en fram á vor það ár. Alls þarf að fylla upp 9000 fermetra, og er gert ráð fyrir, að kostnaðurinn við það verði samtals 45000 kr. Við þetta fást alt að 2500 legstaðir, sem talið er, að nægi Reykjavík í 8 ár, og verður meðalkostnaður þá á ári um 5600 kr.

Með lögunum frá 3. nóv. 1915 er ákveðið legkaup fyrir börn 2 kr., fyrir fullorðna 4 kr., 8 kr. fyrir grafreit til 50 ára og 16 kr. til óákveðins tíma. í frv. er farið fram á ekki alllitla hækkun, en jeg vona, að hv. þm. sjái, að full ástæða er til þessa og gefi frv. greiðan gang í gegnum deildina.