07.03.1924
Neðri deild: 17. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1244 í B-deild Alþingistíðinda. (494)
18. mál, afhending á landi til kirkjugarðs í Reykjavík
Frsm. minni hl. (Jón Kjartansson):
Allsherjarnefnd hefir ekki orðið sammála í þessu máli, eins og hv. 1. þm. Reykv. (JÞ) tók fram, og nál. okkar á þskj. 80 gerir grein fyrir ástæðum okkar minnihlutamanna. Það er kunnugt orðið, að kostnaður við kirkjugarðinn í Reykjavík er mjög mikill hin síðari ár, — um 5–6 þús. kr. árlega, — og lendir þessi kostnaður á ríkissjóði, en er þó að nokkru leyti endurgreiddur með legkaupi, sem þó hrekkur vart fyrir helmingi þessara útgjalda ríkissjóðs. Jeg skal strax viðurkenna það, að mjer er illa við þetta legkaupsgjald; þykir hálfleiðinlegt, að menn verði að greiða sjerstakt gjald fyrir að koma látnum ástvinum sínum í gröfina. En hinsvegar kom til þörf ríkissjóðs fyrir tekjustofn til að vega á móti þessum grafreitarkostnaði hans. Þess vegna leggjum við það til við háttv. þd., að frv. verði samþykt. Þó teljum við hækkun þá, sem frv. stjórnarinnar fer fram á, fullmikla, og því höfum við í nál. okkar lagt til, að hækkunin verði aðeins um helming á við það gjald, sem nú er greitt. Hv. frsm. meiri hl. (JÞ) taldi það ósanngjarnt — og það kemur einnig fram í nál. meiri hl. — að legkaup skuli aðeins greitt í Reykjavík; það má vel vera, að svo sje, en jeg hygg, að grafreitakostnaður úti um land muni vera sýnu minni en hjer. Þetta þyrfti einnig rannsóknar við áður en það yrði lögleitt fyrir alt landið; það verður ekki gert undirbúningslaust. Jeg tel sjálfsagt, eins og hv. meiri hl. fer fram á, að hjer sje leitað að stað fyrir nýjan hagkvæmari grafreit fyrir Reykjavíkurbæ; en jeg get ekki fallist á að afgreiða þetta mál með þessari rökstuddu dagskrá. Ríkið þarf á tekjum að halda til þess að standast þann kostnað, sem það hefir af þessum grafreit. Legkaupsgjaldið legst að sjálfsögðu niður að mestu eða öllu, þegar nýr grafreitur verður fundinn handa bænum og sem verður ríkinu að kostnaðarlausu.