24.03.1924
Efri deild: 27. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2380 í B-deild Alþingistíðinda. (55)
Mannaskipti í nefndum
Einar Árnason:
Fyrir hönd Framsóknarflokksins vil jeg skýra frá því, að hann fellst á útnefningu hv. Íhaldsflokks að því er snertir fjhn. og allshn., og mun því ekki koma fram með lista við kosningu í þær nefndir. En þar sem skýrt er tekið fram í þingsköpunum, að enginn þm. megi vera í fleirum en tveim fastanefndum, en sá hv. þm. (EP), sem tilnefndur hefir verið í mentmn., á þegar sæti í 3 nefndum, þá mun flokkurinn gera till. um kosningu í þá nefnd, og það því fremur, sem einn flokksmaður okkar, hv. 2. landsk. þm. (SJ), á ekki sæti nema í einni nefnd. Munum við því leggja til, að hann verði kosinn í mentmn.