21.03.1924
Neðri deild: 29. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1282 í B-deild Alþingistíðinda. (583)

19. mál, nauðasamningar

Forsætisráðherra (SE):

Ef hjerlendur maður verður ófær til þess að greiða skuldir sínar, er um þrjár leiðir fyrir hann að velja. Í fyrsta lagi getur hann látið taka bú sitt til gjaldþrotameðferðar; í öðru lagi getur hann reynt að semja við lánardrotna sína, en sá hængur er á því, að ef einhver skuldeigandinn neitar að semja um eftirgjöf á skuldagreiðslunum eða vill ekki ganga að því, sem aðrir skuldeigendur hafa gengið að, nýtast engir samningar. Í þriðja lagi getur hann látið reka á reiðanum, sem er óyndisúrræði hið mesta. Frv. þetta fer fram á að heimila, að ákveðin tala skuldeigenda nægi til þess að nauðasamningar náist, og er höfuðreglan sú, að eftir því sem meira er eftir gefið, þarf meira atkvæðamagn. Jeg skal taka það hjer fram, að stjórnin hefir notið aðstoðar prófessors Einars Arnórssonar við samningu þessa frv.

Legg jeg svo til, að frv. þessu verði vísað til allshn. að lokinni þessari umr. Vænti jeg, að frv. fái góðar viðtökur hjá hv. nefnd og hjá þinginu yfirleitt.