22.04.1924
Neðri deild: 53. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2384 í B-deild Alþingistíðinda. (63)
Minning Sigurðar Stefánssonar
forseti (BSv):
Í gærkvöldi ljest hjer í bænum sá maður, er einna lengst hafði átt sæti á Alþingi, sjera Sigurður Stefánsson í Vigur.
Hann var fæddur að Ríp í Skagafirði 1854. Stúdent varð hann 1879 og kandídat í guðfræði 1881. Sama ár vígðist hann til Ögurþinga og hefir þjónað því embætti síðan. Hann sat á 26 þingum og þótti með atkvæðamestu þingmönnum. Hann var íhaldssamur um fjármál, en stóð lengstum framarlega í baráttu þjóðarinnar gegn erlendu valdi.
Vil jeg biðja háttv. deildarmenn að heiðra minningu hans með því að standa upp.
(Allir deildarmenn stóðu upp úr sætum sínum).