20.02.1924
Efri deild: 4. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1313 í B-deild Alþingistíðinda. (636)
5. mál, vegalög
Atvinnumálaráðherra (KlJ):
Enda þótt gildandi vegalög sjeu ekki gömul orðin, aðeins frá árinu 1907, þá hafa verið gerðar á þeim ýmsar breytingar síðan, og hafa þær flestar gengið í þá átt, að koma kostnaði við viðhald vega af sýslufjelögunum yfir á ríkissjóð. En auk þessara breytinga hafa oft heyrst raddir hjer á Alþingi, t. d. árin 1914, 15 og 19, um að æskilegt væri, að lögin væru endurskoðuð í heild. Í fyrra, þegar tekið var á ríkissjóð viðhald Flóabrautarinnar og hluta af Borgarfjarðarbrautinni, komu einnig fram, einmitt hjer í þessari hv. deild, eindregin tilmæli til stjórnarinnar um, að hún legði fyrir þetta þing nýtt vegalagafrv. Lofaði jeg því þá, og því voru teknar aftur tvær brtt. um að láta ríkissjóð halda við Holtaveginum og Fagradalsbrautinni. Samkvæmt þessu loforði leyfi jeg mjer nú að leggja fyrir þingið þetta frv. til algerlega nýrra vegalaga. Samkv. þessu frv. eiga allflestar akbrautir, svo og þjóðvegir, að kostast af ríkissjóði. Einstaka akbraut er þó undanskilin, t. d. Eyjafjarðarbrautin. Eins og alkunnugt er hefir viðhald akbrauta hvílt á sýslufjelögum þegar þær hafa verið fullgerðar. En það hefir reynst þeim langt um megn, af ástæðum, sem teknar eru fram í greinargerð frv. — Það þýðir ekkert að vísa til þess ákvæðis, að ráðuneytið geti látið halda við akbrautum á kostnað sýslufjelaga, ef þau vanrækja viðhaldið, því þau hafa ekkert til að borga með. Viðhaldið er þeim langt um megn. T. d. hefir Árnessýslu ekki verið fært að halda við akbrautinni að Þjórsá, og er því svo komið, að hún skuldar ríkissjóði um 40 þús. kr., sem hann hefir kostað til viðhalds þessarar brautar og sem lítil líkindi eru til, að fáist endurgreitt.
Ef þetta frv. verður samþykt, þá hverfur skilgreiningin gamla milli þjóðvega og akbrauta. Er hvorttveggja nefnt þjóðvegir í frv., enda engin þörf skilgreininga, eftir að ríkissjóður hefir tekið viðhald hvorstveggja á sína arma. Jeg leyfi mjer að leggja fram með frv. sem fylgiskjöl tvö kort:
Annað er yfir Mosfellsheiðarveginn. Kemur mönnum nú alment saman um, að vegurinn til Þingvalla hafi verið lagður á röngum stað. Ætti hann heldur að ganga upp Mosfellsdalinn, en koma síðan yfir á veg þann, sem nú er, skamt frá sæluhúsinu á Mosfellsheiði. Er talin full þörf á að breyta þessu hið fyrsta.
Hitt kortið er yfir veginn gegnum Húnavatnssýslur. Kemur mönnum einnig saman um, að hann sje ekki rjett lagður, og sýnir kortið, hvar honum væri betur fyrir komið.
Loks leyfi jeg mjer að leggja með frv. kort yfir Ísland, er sýnir þjettbýli landsins og alt vega „system“ eftir þessu frv. Leyfi jeg mjer að óska þess, að frv. þessu verði vísað til samgmn.