14.04.1924
Neðri deild: 50. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1350 í B-deild Alþingistíðinda. (656)
5. mál, vegalög
Jón Auðunn Jónsson:
Jeg vil aðeins segja nokkur orð út af því, að jeg hefi skrifað undir nál. með fyrirvara. Annars hefir hæstv. fjrh. (JÞ) tekið fram flest af því, sem jeg ætlaði að segja, og get jeg því verið mjög stuttorður. Jeg álít ekki, að þetta stórmál eigi að ganga fram á þessu þingi. Mjer finst vanta rannsókn á því, hvað slík lög mundu kosta ríkissjóð og málið líka óundirbúið að öðru leyti, þar sem jeg hygg, að fæstar hjeraðsstjórnir hafi sjeð þetta frv., hvað þá við sig ráðið, hvernig þær vildu, að vegalagningunni væri fyrir komið eða hvar vegirnir ættu að liggja um hin ýmsu hjeruð. Að minsta kosti hefir það komið fram í umræðunum, að talsverður ágreiningur er um Biskupstungnaveginn og veginn í Vestur-Húnavatnssýslu.
Hv. Ed. hefir breytt Biskupstungnaveginum frá því, sem upprunalega stóð í frv. vegamálastjórans, og sú breyting veldur ríkissjóði auknum kostnaði svo tugum þúsunda nemur. Þó vil jeg alls ekki leggjast á móti þeirri breytingu, því að jeg álít, að ef samin eru vegalög, eigi að setja þau með hliðsjón til þess, sem kemur þörf hjeraðanna að bestum notum og þannig, að þau hafi sem allra mest not af þjóðvegunum við vegakerfin innanhjeraðs.
Jeg tel rjettara, að um svona stórmál sjeu hjeraðsstjórnirnar að minsta kosti heyrðar og fái sagt álit sitt. En þegar ágreiningur verður innan hjeraðs, verður Alþingi auðvitað að skera úr, en rök ættu að koma með og móti, svo að þeir, sem ókunnugir eru — eins og jeg verð að játa að jeg er — ættu hægra með að átta sig á málinu.
Um veginn í Vestur-Húnavatnssýslu er, eins og menn vita, talsverður ágreiningur. Tillögum vegamálastjóra hefir verið breytt þannig, að kostnaðurinn verður minni fyrir ríkissjóð, en það er álit margra, sem kunnugir eru, að vegurinn samræmist betur innanhjeraðsvegakerfinu, ef hann lægi annarsstaðar en þar, sem nú er ákveðið. Jeg vil heldur ekki í þessu efni horfa eingöngu á kostnað ríkissjóðs, ef hjeraðinu væri betur borgið með því að fá veginn annarsstaðar og hefði þannig meiri hag af honum við vegalagning innan sýslunnar.
Hæstv. fjrh. (JÞ) hefir minst á Krossárdalsveginn og hve miklu fje hefir verið til hans varið; jeg hygg að það sje 20 þús. kr. Í Strandasýslu verður enginn sýsluvegur og tæplega nokkur hreppavegur, ef þessu kerfi er fylgt, nema frá Hólmavík og út á Strandir. Í Barðastrandarsýslu, sem er stór og fjölmenn sýsla, á enginn þjóðvegur að vera eftir þessu frv. Í Vestur-Ísafjarðarsýslu heldur ekki, og þó liggur póstleiðin um þessar sýslur þverar og endilangar. Það er dálaglegt samræsni í þessu. Um Norður-Ísafjarðarsýslu þarf jeg ekki að tala; hv. þm. vita, að þar er landleið ill og ómögulegt að koma við þjóðvegakerfi. Jeg þarf því ekki að fara í neitt reiptog við aðra um þetta mál, heldur get litið hlutdrægnislaust á það í heild. En mjer virðist að bæði viðvíkjandi hjeraðsstjórnunum og engu síður sakir fjárhags ríkissjóðs ætti ekki að samþykkja frv. nú, heldur vísa því til stjórnarinnar, sem gerði fullskýra áætlun um bagga þann, sem það bindur ríkissjóði, áður en það verður gert að lögum.