26.04.1924
Neðri deild: 56. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1393 í B-deild Alþingistíðinda. (674)

5. mál, vegalög

Þórarinn Jónsson:

Hjer mun nú varla fundarfært, en jeg verð þá að segja eitthvað yfir auðum stólunum, þó að enginn sitji í þeim.

Jeg gat um það við 2. umr., að nefndin hefði ekki gefið nógu glögga skýrslu um það, hve miklum útgjaldaauka þetta frv. mundi valda ríkissjóði. Hv. nefnd hefir nú gert grein fyrir því, eftir upplýsingum frá vegamálastjóra, og eftir því er það ekki ýkjahá upphæð, sem samþykt frv. leggur á ríkissjóð fyrst um sinn. Það eru um 20 þús. kr. Verði þetta frv. ekki samþykt nú, geta menn átt það öldungis víst, að á hverju þingi framvegis verður sótt fast af þeim hjeruðum, sem eiga brautir, er hingað til hafa ekki verið í þjóðvegatölu, þangað til þær eru allar komnar í kerfið.

Það eru tvær ástæður til þess, að best er að gera þetta sem fyrst. Við það sparast tími þingsins framvegis og viðhaldið verður betra af hálfu ríkissjóðs en hjeraðanna, sem er þveröfugt við það, sem hæstv. fjrh. (JÞ) hjelt fram. Hann orðaði það þannig, að viðhaldið mundi kosta minna hjá hjeruðunum, en það er sama sem að það verði verra. Það eru dæmi til að rökstyðja þetta með. Þegar hjeruðin sunnanlands áttu að halda við vegum sínum, voru þeir algerlega vanhirtir, og hefir ríkissjóður nú tekið að sjer að leggja þá á ný að 2/3 hlutum. Það er miklu dýrara en að kosta viðhaldið. Þessi ástæða vegur þungt hjá mjer, þegar kostnaðaraukinn er ekki meiri. Það vakti fyrir mjer, að ef ríkissjóður ætti að leggja geysimikið af mörkum, þá gæti verið athugavert að leggja út í þetta. Jeg skal játa, að verði allar brtt. samþyktar, eru horfur á því, að kostnaðaraukinn verði meiri framvegis. En mjer er næst skapi að vera á móti öllum brtt., þar sem jeg á erfitt með að meta, hve mikla sanngirniskröfu þeir vegir eiga á því að komast inn í kerfið, á móts við ýmsa aðra vegi. Jeg gæti nefnt ýmsa vegi hingað og þangað, sem hins sama mætti krefjast fyrir með eins miklum rjetti. Jeg hefi ekki getað gert þetta eins vel upp fyrir mjer og jeg hefði viljað.

Þá kem jeg að þeirri brtt., sem snertir mitt kjördæmi, en það er brtt. hæstv. fjrh. um brúna á Víðidalsá, og verð jeg þá að fara dálítið aftur í tímann. Jeg ætla að það hafi verið á þinginu 1917, að tekin var upp í frv. frá þáverandi vegamálastjóra, hæstv. fjrh., sú breyting á þessum vegi, að hann lægi um Vesturhóp og yfir Víðidalsá töluvert norðar eða vestar en nú, og jafnframt því sem þessi breyting var fyrirhuguð, var það látið heita svo, sem ríkissjóður ætti að kosta aðra brú á Víðidalsá fyrir framan Víðidalstungu. Þó að kjördæmi mitt ætti í hlut, þótti mjer hjer of mikið í borið, og ef annarsstaðar ætti að koma vegakerfinu í svipað horf, mundi það kosta svo mikið, að ekkert viðlit var til, að ríkissjóður gæti kostað það. Jeg átti því hlut að því, að þetta var tekið út úr frv. og látið bíða, enda var engin ástæða til að hraða því. Það var vitað, að engar framkvæmdir mundu á þessu verða í bráð. Núverandi vegamálastjóri tókst ferð á hendur til að rannsaka þetta. Fór hann eftir þessari vestari leið, en mjer er sagt, að hann þá hafi ekki komið á eystri eða gömlu leiðina, og hafði verið í för með honum maður, sem fylgdi vestari leiðinni. En í þjónustu hans hafa síðan verið aðrir verkfræðingar, sem rannsökuðu báðar leiðir, og hurfu þeir frá þessu fyrirhugaða vegarstæði. Get jeg nefnt þá Jón Ísleifsson og Halldór Pálsson, sem báðir hafa eindregið lagt til, að eystri leiðin yrði tekin. Og það, sem meira er, er það, að vegamálastjóri, sem farið hefir loksins þarna um sjálfur, var síðastliðið sumar orðinn eindregið fylgjandi þessu, og býst jeg við að geta fært sönnur á það, ef það verður vefengt. Þetta er sama leiðin, sem jeg hjelt fram að yrði valin 1917, og hefi jeg ekki breytt um skoðun síðan. Það mun heldur ekki hafa verið meining hæstv. fjrh., að ríkið kostaði brú á Víðidalsá fremst í dalnum, heldur var það dula til að veifa framan í þá, sem voru óánægðir.

Fyrsta ástæðan, sem jeg heyrði færða fyrir því að færa brúna, var sú, að menn, sem sóttu verslun á Blönduós af Vatnsnesi og úr Vesturhópi, hefðu oft teflt fje sínu í hættu við að reka yfir ána. Og á þessum grundvelli hefir málið altaf verið rekið. Það hefir altaf verið gripið til þess að safna fjártölu þeirra manna, sem reka til Blönduóss. En í mínum augum er þetta engin ástæða, því jeg lít svo á, að ríkið ætti síst að stuðla að því, að menn reki verslun utan síns hjeraðs, án nokkurs ávinnings, en með talsvert auknum kostnaði. Fækkar þeim líka óðum, sem það gera. Menn verða líka að gæta þess, að þegar komið er norðan af Vatnsnesi fram fyrir Stóruborg, þá er skemra orðið til Hvammstanga og þá er líka krókur fyrir þá menn að fara brúna. Er mjer þess vegna mikil ánægja að því, að hæstv. fjrh. virðist kominn á mína skoðun, að þetta, sem jeg nefndi, og margt fleira, sjeu engar ástæður með vestari leiðinni. Og hvað það snertir, að komið gæti til mála að setja brúna framar á Víðidalsá en um Steinsvað, eins og hæstv. fjrh. hefir stungið upp á, þá fjelst jeg á, að það yrði athugað, og er það hið eina, sem jeg hefi fallist á við hann í þessu máli. En hitt get jeg ekki fallist á, að rjett sje að samþykkja brtt. Það er líka svo, að hún er þannig orðuð, að hún getur misskilist. Að minsta kosti hygg jeg, að menn nyrðra geti vilst á því, að vegurinn er ákvarðaður eftir till. um Línakradal. Nú er nefndur Línakradalur vestan Múlans og einnig þarna að austan; hvort rjettara er, sker jeg ekki úr, og mun ágreiningur verða um það í hjeraðinu. Er þá leiðin opin fyrir deilur og rifrildi innan hjeraðs. En þó frv. verði samþykt eins og það kom frá Ed., þá er ekki loku skotið fyrir það, að rannsakað verði, hvort ekki sje heppilegra að hafa brúna framar. En tvent er athugavert við að færa brúna. Í fyrsta lagi er sumum bæjum gert erfiðara fyrir með því, þótt aðrir auðvitað vinni líka, og í öðru lagi verður vegastæðið að mínum dómi verra. Í þriðja lagi fæst ekki eins góður halli á brautina með því móti. Ennfremur lægi hann þá um engjar, þar sem Víðidalsá gæti ef til vill valdið skemdum á veginum. Er því vafalaust, að þessi breyting myndi hafa mikinn aukinn kostnað í för með sjer. Og þó jeg játi, að einhverjum yrði gert hægra fyrir með því móti, þá veit jeg ekki, hvort það vegur á móti annmörkunum við það. Og víst er það, að Víðidalnum austan árinnar er fullnægt með brúnni á Steinsvaði, eftir því sem fram hefir komið. En jeg hygg, að það, sem fyrir hæstv. ráðherra vakir, sje það að fá akveg inn á hvert heimili í sveitinni. En sá vegur kemur hvort sem er, og mjer virðist, að sýslan hvorki græði nje tapi á því, en nokkuð mikið til þess kostað af ríkissjóði. Enn vil jeg geta þess, að eins og vestari vegurinn er ákveðinn, liggur hann alt of austarlega í Vesturhópi; aðeins 2 bæir þarmegin geta notið hans, en vestanmegin liggja þeir svo hátt uppi í hlíðinni, að hæpið er að fá þangað akveg. Því hlýtur sýsluvegurinn að liggja nær fjallinu. Sömuleiðis er það við þetta að athuga, að frá veginum frá Stað til Blönduóss er gistingarstaður í Víðidal. En verði póstleiðin eins og er í frv., þá er um engan gistingarstað að ræða á þeirri leið á hentugum stað, nema Breiðabólsstað. En sá bær er alt of langt frá brautinni, og oft líka ófært þangað fyrir fannfergju, jafnvel þó kominn væri afleggjari á þjóðveginn. Í sambandi við þetta vil jeg geta þess, til að færa sönnur á hve snjóalög geta gert vegina ófæra, að heim til mín liggur flutningabraut af Blönduósi, um 3 km. á lengd. Liggur hún yfir móa með ofurlitlum lægðadrögum. En þó ekki sje snjóþungt á þessum slóðum, var það þó svo vorið 1920, að ófært var á brautinni. Voru hestar og vagnar dregnir þar upp og er þó ólíkt um snjóþyngsli þar og í Vesturhópi. Og í vorleysingum er veginum mikið tjón búið af vatnsrensli, sem skolar ofaníburðinum af veginum. — Samkvæmt þeim áætlunum, sem gerðar hafa verið yfir kostnaðinn við þessar vegalagningar, þá er munurinn um 60 þús. kr. En enginn skal ímynda sjer, að hann fari ekki upp undir 100 þús. eða meira, eftir því, sem áætlanir eru vanar að standast. Ætti það því að borga 5 ára viðhald á flutningabrautum landsins, sem nú eykst það samkv. þessu frv., verði það að lögum. Jeg vildi því mælast til þess við hæstv. ráðherra, að hann tæki till. sína aftur. Og þó að hann segist meina með henni að vilja aðeins láta færa brúna fram fyrir Steinsvað, þá þykir mjer óviðfeldið að samþykkja frv. með þessu opi.

Vil jeg svo ekki fjölyrða frekar um þetta. Vona jeg, að hv. deild hafi skilið, hvernig jeg lít á þetta mál og hvers vegna jeg vil láta frv. standa óbreytt.