20.02.1924
Neðri deild: 4. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1418 í B-deild Alþingistíðinda. (693)
4. mál, landsreikningar 1922
Fjármálaráðherra (KlJ):
Um frv. þetta sje jeg ekki þörf á að fjölyrða og get í öllu vísað til athugasemdanna með frv. Það er í sama formi og vant er, nema hvað það nú nær aðeins yfir 1 ár. Um nánari sundurliðun hinna einstöku greina get jeg vísað til landsreikninganna. Legg jeg svo til, að frv. þetta fari til fjhn.