06.05.1924
Efri deild: 65. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2387 í B-deild Alþingistíðinda. (71)
Starfslok deilda
Eggert Pálsson:
Jeg vil leyfa mjer í nafni mínu, og jeg þykist vita í nafni allra hv. þdm., að votta hæstv. forseta hugheilar þakkir deildarinnar fyrir lipra og góða stjórn. Að því er snertir þrjá okkur þm. deildarinnar, þá höfum við ekki áður setið undir stjórn þessa forseta, en jeg veit, að við hefðum ekki kosið hann betri.
Hinir hv. þdm., sem lengur hafa notið stjórnar hans, munu ekki síður fúsir á að votta honum þakklæti sitt fyrir lipurð hans, samhliða skörungsskap í forsetasæti.
En um leið og jeg flyt honum þessar þakkir, þá vil jeg óska honum ánægjulegrar heimkomu og góðra lífdaga og vona, að við megum allir hitta hann hraustan næst þegar við komum hjer saman.
Vil jeg biðja þá hv. þdm., sem mjer eru sammála, að votta hæstv. forseta virðingu sína og þakklæti með því að standa upp.
(Allir þdm. tóku undir þessi orð með því að standa upp úr sætum sínum).