17.03.1924
Neðri deild: 25. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1441 í B-deild Alþingistíðinda. (767)
46. mál, vélgæsla á íslenskum mótorskipum
Frsm. (Jón Baldvinsson):
Háttv. þm. Borgf. (PO) mintist á umræðurnar um þetta mál í fyrra hjer í þessari hv. deild, og þykist hann hafa sannfært mig, þar sem jeg hafi ekki flutt nú allar brtt. mínar frá í fyrra. Jeg er nú ekki sannfærður um, að hann hafi þá haft rjettara fyrir sjer, en jeg ber ekki þessa brtt. nú fram vegna þess, að hún mætti svo mikilli mótspyrnu í fyrra, að jeg áliti, að það þýddi ekki að koma með hana nú. Þó er þess að gæta, að í fyrra var búist við því, að mótorskólinn kæmist fljótlega á stofn, en nú er sú von farin að dofna, að af því verði fyrst um sinn. Og þar sem talað er um próf frá þeim skóla í lögunum frá í fyrra, en engar líkur til þess, að hann verði reistur á næstu árum, þá er óeðlilegt að binda atvinnurjettindi manna við annan aðalatvinnuveg landsins við próf frá slíkri stofnun.
Þá hjelt hv. þm. Borgf. því fram, að ekki væri næg trygging fyrir því, að maður væri starfinu vaxinn nema hann hefði próf. Jeg hefi ávalt álitið próf góð og nauðsynleg, en þó held jeg, að menn með prófskírteini frá námsskeiði Fiskifjelagsins sjeu ekki neitt betur vaxnir starfinu en þeir menn, sem stundað hafa þetta starf árum saman, og það sje jafnvel fulteins tryggilegt að láta þá hafa vjelgæsluna. Jeg veit ekki til þess, að það þurfi nein sjerstök skilyrði til þess að komast á námsskeið Fiskifjelagsins, svo það væri óeðlilegt, að menn með próf þaðan stæðu miklu framar mönnum með langa praktiska reynslu, þótt ekki hafi þeir tekið próf.
Þá mælti hv. þm. Borgf. á móti öllum brtt. mínum í einu lagi. Jeg nenni nú ekki að eltast við sjerstök atriði. Þó vil jeg drepa á 7. gr. vjelgæslulaganna og skilning stjórnarráðsins á henni. Það er eðlilegt, ef sá skilningur ætti að ríkja framvegis, að hjer sje átt við menn, sem stundað hafa vinnu á mótorskipum, að þá sje hjer breytt óljósu orðalagi í ljóst og ótvírætt. Eins og þetta atriði er nú í lögunum, orkar það tvímælis, eins og þessi hv. þm. játaði. Og úrskurður stjórnarinnar getur ekki staðið frekar en verkast vill; ekki víst nema hann fjelli, ef málinu væri skotið til dómstólanna. Þess vegna þótti nefndinni rjettara að breyta lögunum hjer, svo að orðalagið væri glögt og greinilegt.
Hvað viðvíkur brtt. við 5. gr., þá styðst hún við það, sem jeg tók áðan fram, að ýmsir menn, sem kunna til vjelgæslu á mótorskipum, hafa látið þá skoðun í ljós, að menn frá vjelstjóraskólanum væru ekki færir um að taka að sjer stjórn á mótorvjelum án sjerstaks undirbúnings. Hjer er um alt aðrar vjelar að ræða og öðruvísi gerðar en þeir hafa lært að fara með, og jeg efast um, að menn, sem eru nýsloppnir frá prófborðinu, sjeu nokkru færari til þessa starfs en þeir menn, sem hafa stundað það lengi, þótt próflausir sjeu. En eftir lögunum er slíkum mönnum meinað að vinna þetta verk, en mönnum með próf frá vjelstjóraskóla Íslands veitt rjettindi.
Um brtt. hv. þm. Borgf. er það að segja, að hún mundi vera óþörf, ef brtt. nefndarinnar við 3. gr. nær að ganga fram (PO: Það er rjett), því eftir henni er mönnum leyft að stjórna vjelum, ef þeir hafa stundað vjelgæslu 12 mánuði eða lengur.