19.03.1924
Neðri deild: 27. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1455 í B-deild Alþingistíðinda. (785)
100. mál, verðtollur
Jón Baldvinsson:
Þegar þetta frv. kom fram, bjóst jeg við, að fjhn. væri á eitt sátt um að láta frv. um innflutningshöft bíða, en taka þetta í stað þess. En eftir ræðu hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) sje jeg, að svo er ekki, heldur ætlast hann til, að þessi mál fari fram samtímis. En þá þykir mjer ekki laust við handahófsafgreiðslu á slíkum málum, ef verðtollsfrv. gengi fram og menn ímynduðu sjer, að þeir væru að samþykkja miljóna tekjuauka handa ríkissjóði, en svo kæmi frv. um innflutningsbann og kipti burt meginhlutanum af þeim vörutegundum, sem þetta frv. leggur toll á. Þá yrði harla lítið úr gagnsemi þessa frv. Mjer þykir hv. fjhn. hafa gert skakt í því, að koma með þetta í miðjum klíðum; hún hefði átt að afgreiða annaðhvort málið og sjá svo hvað unt væri að gera. Það lítur ekki út fyrir, að nefndin sje á einu máli um þetta, þó að svo virðist eftir þskj. 165, en ágreiningurinn kemur fyrst í ljós nú undir umræðunum.
Það er í raun og veru fjarskalega erfitt að segja um, að hvaða gagni þetta megi koma. Það er vitanlegt, að ríkissjóður hefir mikla þörf á tekjum, en þar sem hv. frsm. (JakM) kvað óhjákvæmilegt að auka þær að mun til þess að inna af hendi nauðsynlegar greiðslur, þá veit jeg ekki hvað hann á við, nema hann hugsi sjer, að greitt verði á næsta ári meira af skuldum ríkissjóðs en áður hefir ætlað verið. Hæstv. stjórn bar fram frv. um verulega tollhækkun, sem þessi hv. deild hefir nú afgreitt, og hygg jeg, að það ætti að nægja á næsta ári, sjerstaklega þegar allar verklegar framkvæmdir í landinu eru feldar niður um leið. En sje um hitt að ræða, að inna af hendi stórar greiðslur á skuldum ríkisins, tel jeg rjettara að fara þá leið, sem hv. frsm. drap á, að leggja skatt í eitt skifti fyrir öll á eignir í landinu. Það hefir verið gert sumstaðar annarsstaðar, og þessi stefna er uppi í mörgum löndum, og virðist mjög eðlilegt, að þetta sje gert til að ljetta á ríkisskuldunum.
Jeg skal annars ekki gefa tilefni til frekari umræðna. Málið virðist ekki fullljóst af hendi hv. fjhn., en skýrist vonandi betur, þegar það kemur til 2. umr.