28.03.1924
Neðri deild: 35. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1501 í B-deild Alþingistíðinda. (808)
100. mál, verðtollur
Atvinnumálaráðherra (MG):
Bæði hv. þm. Str. (TrÞ) og hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) hafa tekið það fram, að þeim þættu svör stjórnarinnar loðin og óákveðin, er hún lýsti yfir því, að hún mundi beita innflutningshöftum eins mikið og ríkissjóður þolir. Þeir vilja víst ganga lengra. En jeg tel, að ekki megi ganga lengra en svo, að það sje trygt, að reikningur landsins fyrir árið 1924 sje tekjuhallalaus. (SvÓ: Og allar skuldir borgaðar). Nei, ekkert borgað af skuldum, nema það, sem samningsbundið er, og eins lítið af lausum skuldum eins og hægt verður að komast að samningum um.
Háttv. 1. þm. S.-M. sagði, að það væri gott að heyra, að jeg væri ekki með öllu mótfallinn innflutningshöftum. Þessi hv. þm. ætti að muna það, að það var jeg, sem fyrstur bar það mál fram hjer á þingi. En þá var hann sjálfur á móti því. Ennfremur sagði hann, að jeg væri svo vitur að vera ekki á móti höftunum nú, þegar almenningsviljinn væri svo sterkur með þeim. Það var enginn almenningsvilji með þessu máli, er jeg bar það fram fyrst, og hafði það þá engin áhrif á mig. Þetta eru því dylgjur og ástæðulausar aðdróttanir. Þá sagði hann, að af þessari yfirlýsingu leiddi það, að stjórnin ætlaði sjálf að ákveða, hvað hún notaði höftin mikið. Það er ekkert undarlegt. Ef til kemur, fer hún sjálfsagt líkt að nú og stjórnin gerði 1921. Þá setti hún, strax og þingið heimilaði það, reglugerð um innflutningshöft, sem síðan hefir staðið, þangað til fyrir fáum dögum, óhreyfð af þeirri stjórn, er þessir háttv. þm. (SvÓ, TrÞ) hafa stutt. Annars sje jeg vel, hvað liggur á bak við ræður þessara háttv. þm.; það er ekkert annað en undirbúningur til þess að gera aðsúg síðar að stjórninni, hvað svo sem hún kann að gera í þessu efni. Þetta er það, sem fyrir þeim vakir.
Háttv. þm. Str. sagði, að það væru einkum kaupmenn, sem stæðu bak við þessa stjórn. Jeg veit ekki, hvað margir kaupmenn kunna að hafa kosið mig, en hitt veit jeg, að jeg er kosinn á þing með fleiri bændaatkvæðum en hann. Hann kvaðst gera sig ánægðan með það, ef stjórnin vildi styðja að innflutningshöftum, sem gengju í líka átt og ráðgert er í frv. því, sem hjer hefir verið lagt fyrir þingið. Þessa yfirlýsingu getur hv. þm. vel fengið. Jeg undrast bara, að hann skuli sækjast svo fast eftir jafnóákveðinni yfirlýsingu. Honum er víst nóg, hvað lítið sem bannið gengur í líka átt og þetta frv. Þá sagði þessi háttv. þm., að hann vildi ekki samþykkja þetta frv. til þess að láta stjórnina fá fje milli handanna, ef hún vildi ekki framkvæma innflutningshöftin eins og honum líkaði. Mjer dettur ekki í hug, að nokkur stjórn, sem háttv. þm. Str. er á móti, geti gert honum til hæfis. Jeg held yfirleitt, að engin stjórn geti gert svo „oppositioninni“ líki. Þá sagði hann, að það mætti tolla vörurnar úr Gullfossi eftir að þær væru komnar í land. Það er undarleg aðferð, og langtum rjettara að gera það áður, úr því það er hægt; enda hefir sú aðferð, sem háttv. þm. bendir á, aldrei verið viðhöfð. Jeg veit ekki betur en að Gullfoss fari frá Leith á morgun, og er því óhjákvæmilegt, ef lögin eiga að vera komin í gildi áður en hann kemur hingað, að þau verði afgreidd í síðasta lagi á mánudag. En afleiðingin af því, ef frv. verður ekki afgreitt sem lög þá, er sú, að ríkissjóður missir miklar tekjur; hvað miklar, get jeg ekki sagt, en sjálfsagt ekki minna en 100–200 þús. kr. En það fje er samkvæmt kenningu háttv. 1. þm. S.-M. tekið úr vasa landsmanna og lendir í vasa kaupmanna, ef frv. gengur ekki nógu fljótt fram. Og ber nú undarlega við, er kaupmannastjórn er að seilast niður í vasa kaupmanna, en andstæðingamir vilja hrúga þangað fjenu. Allir sjá, að eitthvað er bogið við þetta. Og það er líka svo. Mótstaðan gegn frv. er bygð á blekkingum og engu öðru.