29.03.1924
Neðri deild: 36. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1521 í B-deild Alþingistíðinda. (822)

100. mál, verðtollur

Klemens Jónsson:

Hæstv. atvinnumálaráðherra segir nú, að alveg eins megi beita lögunum frá 1880 um innflutninghöft eins og að setja ný lög um það efni. En yfirlýsingu þá, sem hæstv. atvrh. gaf í gær, gat jeg ekki skilið öðruvísi en svo, að þar veri um ný lög að ræða. Sje svo, að hæstv. stjórn ætli ekki að standa við gefið loforð, þá þarf ekki mín vegna að gefa neinn frest í málinu. Jeg verð ákveðinn á móti því, að afbrigði verði leyfð.