24.03.1924
Neðri deild: 31. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 131 í B-deild Alþingistíðinda. (83)

1. mál, fjárlög 1925

Klemens Jónsson:

Jeg hafði búist við, að hæstv. stjórn mundi taka næst til máls, en þar sem hún hefir ekki kvatt sjer hljóðs, vænti jeg þess, að hv. deildarmenn fyrirgefi mjer, þó að jeg grípi strax orðið.

Þegar menn eiga tal við erlenda fjármálamenn um hag ríkissjóðs, spyrja þeir fyrst að því, hvort tekjuhalli sje á gildandi fjárlögum eða tekjuafgangur, og sje þeim sagt, að þau sjeu afgreidd með tekjuhalla, gretta þeir sig og segja, að það sje ákaflega óhyggileg pólitík. Jeg hygg, að þeim mundi fara eins, ef þeir sæju fjárlagafrv. fyrir 1925, eins og hv. fjvn. hefir gengið frá því, að þótt ekki sje nema 100000 kr. tekjuhalli á því, muni þeir telja það óhyggilega ráðið. Auðvitað spyrja þeir ekki um það, hvort fjárlögin sjeu í raun og veru gætilega samin, að áætlunin muni standast, heldur gera þeir að sjálfsögðu ráð fyrir, að svo sje.

Nú hefir háttv. fjárveitinganefnd komist að þeirri niðurstöðu, að áætlun stjórnarinnar í fjárlagafrumvarpinu væri ekki nákvæm í ýmsum atriðum, og breytingar nefndarinnar væru frekar reikningslegar en raunverulegar. Jeg býst þó við því, að hv. nefnd muni eiga erfitt með að sannfæra mig um það, að t. d. allar hækkanirnar til símans, sem nefndin leggur til, sjeu eingöngu reikningslegar, en jeg mun víkja nánar að því síðar. Annars er það vitanlegt um tekju- og gjaldaáætlunina, að oft getur verið mikið álitamál, hvort þetta eða hitt sje rjettara. Jeg hygg, að háttv. þm. muni veitast erfitt að gera það upp fyrir sjer, hvort rjettara sje að áætla aukatekjurnar 1925 300000 kr. eða 280000 kr., enda fer það mikið eftir árferði, eins og getið er um í athugasemdum stjórnarinnar við frv. Einnig er ógerningur að gera upp á milli þess, hvort áætla beri kaffi- og sykurtollinn 25000 kr. lægri eða hærri, eða hvort gjald af brjóstsykur- og konfektgerð eða tekjur af víneinkasölu muni verða nokkrum þúsundum lægri eða hærri. Þetta verður jafnan álitamál, og má engan veginn áfellast stjórn eða þing, þó að komist sje að þessari eða hinni niðurstöðunni.

Jeg drap á það í framsöguræðu minni við 1. umr. þessa máls, að jeg teldi vörutollinn áætlaðan of hátt, eftir upplýsingum, sem jeg hafði fengið síðan jeg gekk frá frv. Nefndin hefir tekið þessa bendingu til greina, að nauðsynlegt sje að lækka áætlunina, og nemur sú lækkun svo miklu, að það heggur djúpt skarð í þann tekjuafgang, sem áætlaður er í frv. Eins er um ýmsa útgjaldaliði, að erfitt getur verið að áætla, hvort þeir muni verða þúsundinu hærri eða lægri, en auðvitað er best að fara varlega, áætla tekjurnar sem lægstar, en gjöldin svo hátt, sem þau mundu frekast reynast. Það hefir ekki altaf verið gert, þó að menn hafi viðurkent, að þetta sje rjettast. En þó virðist mjer, sem hv. fjvn. hafi í þetta skifti gengið lengra í varfærninni en venja hefir verið áður.

Jeg skal þá leyfa mjer að víkja fám orðum að einstaka atriðum í þessum kafla. Tel jeg það sjálfsagða reglu, að einstakir þm. hafi ekki orð um fleiri liði en þeim þykir sjerstök ástæða til að tala um, en þræði ekki hvern lið fyrir sig, eins og frsm. verður að gera, og á þetta ekki síst við um fjöldann allan af brtt., sem komnar eru frá einstökum þm.

Fyrsta brtt. fjvn. er að hækka um 100000 kr. þau gjöld, sem um ræðir í 7. gr. 1. lið, en það eru vextir af innlendum lánum. Ástæðan til þessarar hækkunar er sú, að ekki hafi verið tekið upp á skuldalistann lán Landsbankans, sem er upp undir 2 milj. kr. Þetta er að vísu rjett, en við því ætti að mega búast, eftir þeim sparnaði, sem framkvæmdur verður á þessu ári og lagt er til, að gerður verði á næsta ári, að eitthvað verði greitt af þessum lánum. Þau eru ósamningsbundin, og ber því fyrst af öllu að greiða þau. Af þessari ástæðu áætlaði jeg þennan lið ekki hærri. Getur verið, að rjett sje að hækka hann eitthvað, en jeg hygg, að 100000 kr. hækkun muni reynast óþarflega há.

Þá leggur nefndin til að hækka fjárveitinguna til gæslu landhelginnar um 30000 kr. Jeg er samdóma hv. nefnd, að þessi hækkun sje nauðsynleg. Það hafa komið margar kvartanir um það víðsvegar af landinu, að landhelgisgæslan sje ónóg, og nú alveg nýlega hafa komið alvarlegar umkvartanir frá mönnum austanfjalls. Þar hafa botnvörpungar vaðið inn í landhelgina og gert mönnum svo þungar búsifjar, að þar, sem hefir verið mokafli daginn áður, er oft engan fisk að fá 1–2 dögum síðar. Þessar alvarlegu kærur hafa komið síðustu dagana, og hefir þó varðskipið sýnt mikinn dugnað það sem af er starfstíma þess á þessu ári. Sýnir það ljóslega, að það skip er ekki einhlítt til að verja landhelgina.

Þá leggur nefndin til að hækka talsvert fjárveitingar til ýmsra stofnana til ljóss og hita. Jeg skal geta þess, að við samningu frv. lá fyrir beiðni, jeg hygg undantekningarlaust frá öllum stofnunum og skólum, um hækkun á þessum lið. Jeg fór nákvæmlega yfir þessi erindi, og verð jeg að játa það, að mjer fanst sum á rökum bygð, en þó hvergi nærri öll. Það er alkunnugt, að skólar og svipaðar stofnanir hafa verið fíknar í að fá miðstöðvarhitun og rafmagn, þar sem um það er að ræða. Fyrir miðstöðvarhitun eru jafnan færð þau rök, að við það sparist mikið eldsneyti. En svo undarlega bregður við, að þegar miðstöðvarhitunin er komin, þá er farið fram á hækkun og rökstutt með því, hve dýr hún reynist. Jeg hygg, að meira eftirlit megi hafa með eldiviðareyðslu en gert hefir verið, enda er jeg sannfærður um, að hæstv. stjórn muni hafa alla gát á þessu.

Nefndin leggur til, að hækkuð verði gjöldin til sóttvarna, bæði innanlands og til ráðstafana gegn því, að sóttir berist frá útlöndum. Þetta eru lögboðin gjöld, og verður ekki komist hjá að greiða þau, hvort sem þau reynast mikil eða lítil. Reynslan sýnir, að þau hafa verið mjög á reiki á undanförnum árum. Þó verð jeg að segja, að jeg álít, að komast hefði mátt af með talsvert minni kostnað en gert hefir verið. Jeg hygg, að kostnaðarreikningarnir hafi ekki verið gagnrýndir eins og mátt hefði. Vænti jeg þess, að hæstv. stjórn haldi áfram þeirri reglu, sem jeg hefi gert mjer far um að fylgja 2 undanfarin ár, að athuga nákvæmlega alla reikninga til ríkissjóðs, og er mjer óhætt að segja, að margir eru það ekki, sem hafa komist fram hjá þeim hreinsunareldi. Ætti þingið að hvetja hæstv. stjórn til að athuga alla reikninga nákvæmlega og að það verði brýnt fyrir öllum embættismönnum. Hygg jeg, að við það mætti spara talsvert.

Í þessu sambandi vil jeg leyfa mjer að minna á, að jeg hef afhent hjer í þinginu frv. um berklavarnir. Jeg hef ekki orðið þess vísari, hvar frv. er niður komið, og leyfi jeg mjer því að lýsa eftir þessu frv. einu sinni enn. Komi þetta frv. ekki fram, verður óhjákvæmilegt að hækka að mun áætlunina um kostnað við berklavarnir.

Þá er einn liður, sem háttv. fjvn. hefir bætt við, 1000 kr. styrkur til bifreiðaferða vor og haust frá Reykjavík austur um sveitir. Jeg vil sem þingmaður leyfa mjer að færa nefndinni mínar bestu þakkir fyrir að taka upp þennan lið. Það var af athugunarleysi, eða þó öllu fremur af tilviljun, að þetta var ekki tekið upp í frv., en alls ekki ætlun stjórnarinnar að hætta við þessa tilraun, sem hafin var á síðasta ári og hjeraðsbúar þar eystra voru mjög ánægðir með.

Þó að jeg geri ekki ráð fyrir að verða með miklum hækkunum eða greiða atkvæði með nema örfáum brtt. í þá átt, hlýt jeg þó að aðhyllast 38. brtt. nefndarinnar, um 45000 kr. styrk til Eimskipafjelags Íslands til strandferða. Þetta er að vísu allmikil upphæð, en eins og tekið er fram í nál. og hv. frsm. (ÞórJ) gat um, er hagur fjelagsins talsvert þröngur, en fái það þennan styrk, er sennilegt, að það komist yfir mestu vandræðin, sem það er í. Jeg mun því greiða atkvæði með þessari brtt., en sennilega ekki með öðrum í þessum kafla.

Þá kem jeg að feitasta bitanum, sem er símakerfið. Nefndin leggur til, að þar verði gerðar ýmsar hækkanir, sem nema hvorki meira nje minna en 112 þús. kr. Jeg er sannfærður um, að af þessari upphæð er mjög lítið einungis reikningsfærsla, heldur mesti hlutinn veruleg gjaldaaukning.

Nefndin kemst þannig að orði í nál. um þessa liði: „Reynslan sýnir, að jafnan hafa verið áætluð of lágt gjöldin til símans, enda sjest af skjölum þeim, sem legið hafa fyrir nefndinni, að stjórnin hefir dregið mikið úr tillögum landssímastjóra.“ Þetta væri rjett að orða þannig, að reynslan sýni, að landssímastjóri hafi jafnan farið langt fram úr áætlun, venjulega að stjórninni fornspurðri, sbr. fjáraukalögin fyrir 1922. Jeg veit, að nefndin hafði nákvæma skýrslu um gjöld símans 1922, er jeg krafði landssímastjóra um.

Þá þykir hv. fjvn., að stjórnin hafi ekki áætlað nógu hátt starfslaun símamanna og ekki tekið tillit til launa nokkurra þeirra símamanna, sem ekki verði komist af án. Það er satt, að stjórnin bjóst ekki við, að símaverkfræðingur yrði skipaður, en sá sjer þó ekki fært að standa á móti því, er landssímastjóri lagði mjög með því. En það er alkunnugt, að ýmsar tilraunir frá landssímans hendi hafa verið gerðar til að smeygja nýjum mönnum inn í fjárlögin og breyta með því launakjörum starfsmanna símans. Er það mjög óviðkunnanlegt, og ber að gæta varygðar við því. — Nýjum starfsmönnum við símann hygg jeg ekki þörf að bæta við, en það get jeg ímyndað mjer, að sje á skrá landssímastjóra.

Þá hefir nefndin áætlað gjöldin við bæjarsímann í Reykjavík 30 þús. kr. hærra en stjórnin. Með tilliti til þess, að bæjarsíminn hefir alveg nýlega fengið miklar og kostnaðarsamar endurbætur, þá virðist þetta vera nokkuð langt gengið, og verð jeg því að ráða hv. deild frá að samþykkja þessa brtt. nefndarinnar. Og þó einhver búist við, að bæjarsíminn gefi af sjer 50% p. a. í gróða, þá mun tæplega verða sú reyndin á.

Þá hefir verið hækkuð um 20 þús. kr. upphæðin til viðhalds landssímanna. En þar sem engra gagngerðra umbóta mun þörf nje aukningar á talsímakerfinu, þá verð jeg að álíta, að 90 þús. kr. ættu að hrökkva til.

Þá kemur manni það undarlega fyrir sjónir, að hv. nefnd skuli hækka skrifstofukostnað vitamálastjóra, þar sem mjög lítið verður þó unnið að vitabyggingum nú. Raunar er þetta lítil upphæð. En í sama mund leggur nefndin til, að lækkaður verði skrifstofukostnaður landlæknis og biskups o. fl. Get jeg raunar verið því samþykkur.

Þá hefi jeg farið nokkuð út í flestar þær till. hv. fjvn., sem jeg finn sjerstaklega ástæðu til að minnast á. Jeg get í fám orðum sagt, að jeg tel flestar hækkanirnar ónauðsynlegar, og mun því greiða atkvæði á móti þeim. Að öðru leyti virði jeg mjög mikils þær tilraunir hv. nefndar, sem fara í þá átt að draga úr útgjöldunum. En hjer hefi jeg fyrir framan mig talsvert af brtt. frá einstökum þm., og þykir mjer leitt til þess að vita, að fæstar af þeim virðast vera í samræmi við þá viðleitni stjórnar og hv. fjvn., að minka nú öll útgjöld sem mest. Er hjer sumstaðar um allháar upphæðir að ræða, og mun jeg greiða atkvæði mitt móti þeim velflestum.

Ein sparnaðartill. er þó á ferðinni, sem er slíks eðlis, að jeg get ekki fallist á hana. Er það till. hv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ) um að fella niður styrkinn til útgáfu manntalsins 1703. Eins og menn muna, var það samþykt á þinginu í fyrra, og lýsti jeg þá allrækilega, hversu merkilegt þetta handrit væri, ekki hvað síst fyrir íslenska ættfræði, en svo sem menn vita, þá er ættfræðin grundvöllur allrar sagnfræði. Rit þetta er sannkallað „unicum“, engin önnur þjóð á rit, sem svo merkilegt er í sinni röð, og hver menningarþjóð myndi hafa flýtt sjer að gefa svo merkilegt rit út. Í því efni er okkur þó nokkur vorkunn, þar sem svo stutt er liðið frá því að mönnum varð kunnugt um, hvar rit þetta var niður komið.