29.03.1924
Neðri deild: 36. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1539 í B-deild Alþingistíðinda. (840)

100. mál, verðtollur

Frsm. (Jakob Möller):

Út af því, sem hv. 2. þm. Árn. (JörB) sagði viðvíkjandi brtt. sinni á þskj. 250, hefi jeg aðeins þetta að athuga: Þar sem jeg sagði, að töluvert mikið væri til af þessum vörutegundum í landinu, þá átti jeg við, að ef þær yrðu undanskildar þessum tolli, gæti það leitt til þess, að óþarflega mikið væri flutt inn af þessum vörum. Og þar sem jeg veit ekki betur en hv. þm. (JörB) sje hlyntur höftunum, ætti þetta síst að vera þyrnir í hans augum.

En ef menn óttast það, að tollurinn komi niður á þeim vörum, sem fyrir eru, virðist ekki síður ástæða til þess að óttast, að það, sem svarar tollinum, verði lagt á vörurnar af kaupmönnum, þó þær sjeu undanskildar í lögunum.

Það kemur sem sagt til athugunar, þegar undanskilja á nokkrar vörutegundir, hvort það nái tilgangi sínum. Jeg hygg, að þegar þessi tollur kemur á þessar vörur, verði það í fyrsta lagi til þess, að kaupmenn flytji minna inn af þeim, og í öðru lagi, að þeir reyni að selja sem mest þær tegundir, sem fyrir eru. Geri jeg ráð fyrir, að þeir hugsi jafnvel meira um að selja upp það, sem til er, en að skrúfa verðið óhæfilega hátt vegna tollsins. Annars er vitanlega aðeins um getgátur að ræða í þessu efni. Kaupmenn hafa altaf um tvent að velja, annaðhvort að selja meira og græða minna á hverju einu, eða þá að selja minna og græða meira á hverju einu. En hjer hlýtur samkepni að koma til greina og reynast heppileg.

Annars langaði mig til þess, með leyfi hæstv. forseta (BSv), að fara svolítið út fyrir efnið, þar sem hv. 2. þm. Reykv. (JBald) gaf mjer fylsta tilefni til þess.

Það er nú svo, að blað hans, sem jeg virði ekki þess að fara í mál við það út af ærumeiðingum, hefir dróttað því að mjer, að jeg væri til kaups hjer á Alþingi. Nú skal jeg, af því að hv. samþm. minn (JBald) gaf eitthvað líkt í skyn, skora á hann að segja skýrt og skorinort, hvort hann beinir slíku til mín. En fyrirfram skal jeg segja honum það, að allar slíkar aðdróttanir eru tómur uppspuni og lygi frá rótum. Og hann veit það sjálfur, að þetta er staðleysa. Skal jeg til frekari árjettingar, út af því, sem blað hans hefir sagt um mig í sambandi við það, að mjer var veitt eftirlitsstaðan með bönkum og sparisjóðum, lýsa því hjer yfir í áheyrn þessarar hv. deildar, að jeg sótti um stöðuna fyrir beina hvatning frá flokksmönnum ráðherra þess, sem stöðuna veitti, án þess að mjer hefði fyr komið í hug að sækja um hana. Fylgi við þá eða flokk þeirra var ekki orðað, nje að neitt kæmi í staðinn, enda hefði það ekki orðið. Mun verða erfitt fyrir háttv. þm. (JBald) að benda á slíkt, og sannast að segja hálfhjákátlegt að ætla slíkt, því þegar staðan var veitt, var það fyrirfram vitað, að sú stjórn færi mjög bráðlega frá, og undarlegt að hyggja, að hún væri að kaupa sjer fylgi þegar hún var að leggja niður völdin. Þetta, sem hv. þm. talaði um, að jeg hefði „bóndafangað“ einhvern eða einhverja áður og á bak við tjöldin, er því bersýnilega staðleysa og aðdróttanir, sem jeg vona, að hann renni niður aftur við fyrsta tækifæri.