31.03.1924
Efri deild: 34. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1571 í B-deild Alþingistíðinda. (858)

100. mál, verðtollur

Frsm. minni hl. (Ingvar Pálmason):

Eins og hv. deild er. kunnugt, gat nefndin ekki orðið sammála, og hafa komið fram tvö nál. Að vísu virtist svo á nefndarfundi, að allir nefndarmenn — einn var forfallaður og fjarverandi — myndu verða óánægðir með frv. Samt sem áður gat ekki orðið samkomulag um breytingarnar, og þá áttum við hv. sessunautur minn (JJós) ekki samleið. Hv. deild er kunnugt um afstöðu mína til þessa máls frá 1. umr., og liggur því næst að gera grein fyrir þeim breytingum, sem minni hl. leggur til að gera á frv.

Fyrsta breyting er orðabreyting, þannig, að í staðinn fyrir: „viðhafnarlaus skófatnaður úr skinni“, komi: „skófatnaður úr vatnsleðri“. Eins og tekið er fram í nál., fanst minni hl. orðið „viðhafnarlaus“ svo teygjanlegt, að þörf væri á þessari breytingu. Það má vera, að sumum finnist, að yfirgrip frv. sje frekar aukið með þessum breytingum. Því ber ekki að leyna, að brtt. er fram borin í þeim tilgangi, að meira falli undir tollinn en eftir frv. Fyrir mína hálfu vil jeg lýsa því yfir, að úr því að sú leið er valin til að afla ríkissjóði tekna, að leggja á háan verðtoll, tel jeg ekki ósanngjarnt, að skófatnaður heyri undir slíkan toll, að fráskildum hinum nauðsynlegustu tegundum. Eins og kunnugt er, hefir skósmíði verið til skamms tíma talsverð iðnaðargrein hjer á landi, en nú virðist hún vera að hverfa úr sögunni. Tel jeg það ver farið, því útlendi skófatnaðurinn er síst betri en hinn handunni.

Það, sem yfirleitt er mest sett út á innlendan varning, er, að hann sje ekki útlitsfallegur, en þó dýrari en hinn útlendi. Það má vera, að innlendi skófatnaðurinn sje eitthvað dýrari, en jeg staðhæfi, að hann sje endingarbetri; þegar alt kemur til alls, er spursmál, hvort hann sje dýrari. Einnig má líta á, að það er heldur til að bæta úr atvinnuleysi, sem er mjög æskilegt að gerðar væru tilraunir til. Þó einhver verðhækkun verði fyrir notendur, tel jeg alt öðru máli gegna að borga nokkru dýrara í verðtolli heldur en þegar í því felast atvinnubætur. Veit jeg, að hv. deild skilur, hvað fyrir okkur vakir.

Önnur breyting við 1. gr. hljóðar um það, að bæta við nokkrum tegundum, sem sjeu undanskildar tolli. Það eru hinar allra nauðsynlegustu klæðavörur. Þó við sjeum frv. andstæðir, teljum við skyldu okkar að reyna að hafa áhrif til að draga úr þeirri dýrtíð, sem óumflýjanlega stafar af því, einkum fyrir fátækasta fólkið. Þessar tegundir eru mikið notaðar af hinum fátækari lýð, og gallinn er, að ekki er hægt að benda á neitt innlent í staðinn.

Þá er 2. brtt. við 5. gr., að í staðinn fyrir „árslok 1925“ komi: „febrúarlok 1925“. Þessi brtt. er eðlileg afleiðing af því áliti, sem við tveir nefndarmenn höfum á þessu máli. Jeg tek það fram, að jeg ber engu minni ábyrgð á þessari till. en hv. meðnefndarmaður minn. Ef knýja á fram þennan verðtoll, álít jeg betra, að það sje ekki lögákveðið, að hann standi nema fram á næsta vetur, því þá mun reynslan skera úr, hvort heppilegt muni að framlengja hann. Að öllu sjálfráðu kemur þing saman næstk. febrúar. Vona jeg, að hv. deild sjái sjer fært að samþykkja brtt., því í þeim felast aðeins sanngirniskröfur.

Til árjettingar því, sem jeg hefi áður sagt um þetta mál, vil jeg láta þess getið, að mjer finst mjög óviðkunnanlegt, undir þeim kringumstæðum, sem við lifum nú, að af þeim mörgu vandamálum, sem við höfum til að ráða fram úr, skuli vera lögð mest áhersla á þetta mál og það keyrt í gegn með afbrigðum frá þingsköpum, — frv. um að auka álögur á þjóðinni. Að vísu eru orsakir taldar þær, að svo bráðlega sje von á miklum birgðum af þessum vörum, sem koma eiga undir tollinn.

Jeg vil benda á það, að þingið virðist hafa farið eftir óskum alt annara manna en þeirra, sem þessar álögur koma harðast niður á. Þingið þarf að taka miklu fastari tökum á þeim málum en gert hefir verið, sem miða að því að bæta hag gjaldþegnanna, svo settu innflutningshöft, eftirlit með afurðasölu, ráðstöfun gjaldeyris o. fl. Um þetta efni hefi jeg nokkuð rætt við 1. umr. Það eru ýms vandkvæði, sem eins mikil nauðsyn er til að greiða úr, en hinn tæpi fjárhagur ríkissjóðs. Til að fyrirbyggja misskilning, skal jeg taka það strax fram, að þótt skuldir ríkissjóðs sjeu 20 milj. eftir gengi íslenskrar krónu í dag, álít jeg, að fyrir þessu þingi liggi ýms miklu meiri úrlausnarefni til að ráða fram úr, því það verðum við að hafa hugfast, að hagur ríkissjóðs byggist fyrst og fremst á hag gjaldenda. Þess vegna er mest nauðsyn á að bæta hag þeirra, t. d. bænda, sjávarútvegsmanna og verkamanna, og ef það tekst, þá verður ljett að leysa skuldahnút ríkissjóðs. Jeg vil beina þeirri spurningu til hæstv. stjórnar, hvort hún sjái sjer ekki fært að gera á þessu þingi öflugar bjargarráðstafanir til viðreisnar atvinnumálunum og gengi krónunnar. Þó jeg ekki beri fult traust til hæstv. stjórnar, ber jeg það mikið traust til hennar, að hún sjái, að okkur er ekki nóg að fá peninga í kassann. Mjer finst þessi tolltekjuaðferð vera hliðstæð búmenska og hjá bónda, sem sveltir kúna sína til þess að hún geri meira gagn.

Svo legg jeg till. undir úrskurð háttv. deildar, en tek það fram, að jeg hefi ekki enn fengið nægilega tryggingu fyrir því, að fleiri bjargarráðstafanir verði gerðar, og því get jeg ekki lofað að gefa frv. atkv. mitt, jafnvel þó breytingar okkar komist að.