31.03.1924
Efri deild: 34. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1586 í B-deild Alþingistíðinda. (864)
100. mál, verðtollur
Björn Kristjánsson:
Eins og hv. þm. hafa sjeð, hefi jeg skrifað undir nál. með fyrirvara. Það er vegna þess, að jeg er ósamþykkur tollaleiðinni, sem valin hefir verið. Jeg álít, að verðtolli sje ekki hægt að beita hjer á landi fyr en við höfum fengið fullkomna tollgæslu, eins og í öðrum löndum. Svo fullkomna, að hver einasta sending sje opnuð og rannsökuð og borin saman við reikninga. Mjer finst verðtollsleiðin erfið, enda hefir þingið til þessa aðhylst vörutollsstefnuna. Aðeins var út af brugðið á stríðsárunum, en þá var tollurinn lágur. En þá var það aðeins neyðarráðstöfun. Það er ekki mikil trygging fyrir því, að tilætlaðar tekjur af þessum tollum fáist í ríkissjóð meðan tollgæslan er ónóg. Kaupmenn eiga svo hægt með að skjóta vörum undan tolli, sjerstaklega þeir, sem eiga vini og venslamenn, erlendis. Þeir geta skotist undan tolli á kostnað innlendra kaupmanna, og afleiðingin verður, að verslunin kemst í hendur útlendinga.
Af því að málið er komið svo langt, að ekki verður aftur snúið, og að mest er um vert að afla ríkissjóði tekna, mun jeg, þó að jeg sje óánægður með þessa. stefnu, greiða atkvæði með frv., en móti öllum brtt. Álít jeg ekki ráðlegt að flækja frv. milli deilda fyrir einhver smáatriði. Jeg greiði þó atkvæði með þeirri von, að þessi stefna verði ekki ráðandi framvegis.
Jeg tel víst, að hæstv. fjrh. hafi ekki verið einráður um, hvaða stefna var valin; vona, að það sje ekki hans persónulegur vilji að halda þessari stefnu fram.
Jeg vil lítillega minnast á brtt. á þskj. 259, um að undanskilja nokkrar vefnaðarvörutegundir. Þar er nefnt Bommesie, sem ýmist mun vera loðið öðrumegin eða báðumegin. Flónel skilja menn, að nái til alls þess, sem við notum sem flónel, án tillits til, hvað það er kallað á útlendu máli. Skýringin á orðinu er til að villa. Menn leggja misjafnan skilning í orðið „boldang“. Jeg man eftir, að þegar jeg var drengur í Árnessýslu, var sagt, að menn gengju á boldangsbuxum, en buxurnar voru úr striga. Á Suðurlandi hefir „boldang“ þýtt strigi, nokkuð þykkur. Ef menn eiga með þessu við sængurdúk, er nafnið skakt, því sængurdúk nefna menn bara sængurdúk hjer fyrir sunnan. (SJ: Ekki fyrir norðan). Þess vegna verður að nefna þetta einhverju nafni, sem allir skilja.