24.03.1924
Neðri deild: 31. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 165 í B-deild Alþingistíðinda. (90)

1. mál, fjárlög 1925

Jón Baldvinsson:

Jeg ætla ekki að þessu sinni að ræða rækilega nefndarálit hv. fjvn., þó að mjer líki það alt annað en vel að öllu leyti. Jeg ætla að minnast á brtt. VII á þskj. 196, um að veita 5 þús. króna styrk til slysatryggingarsjóðs verkamanna og sjómanna hjer í Reykjavíkurbæ. Af hálfu hins opinbera hefir ekkert verið gert til þess að tryggja verkamenn fyrir slysum, þó að allir hljóti að sjá þörfina. Á Alþingi hefir málið að minsta kosti komið þrisvar til umræðu og þingsályktunartill. verið samþyktar í þá átt. En úr framkvæmdunum hefir ennþá ekki orðið. En þar sem þessar samþyktir sýna glögglega, að þingið hefir sjeð og viðurkent þörfina, má ætla, að þessi till. mín á þskj. 196 nái fram að ganga og fjeð verði látið í tje.

Slysatryggingarsjóður verkamanna og sjómanna er stofnaður af nokkrum hluta andvirðis botnvörpunga þeirra, er seldir voru til útlanda á stríðsárunum. Hafði það skilyrði verið sett, að nokkuð af andvirðinu rynni til styrktar verkamönnum á sjó og landi. Var fjeð fengið til ráðstöfunar bæjarstjórn Reykjavíkur. Var síðan sjóðurinn stofnaður af 100 þúsund krónum og stjórn hans falin fulltrúaráði verkalýðsfjelaganna. Hefir sjóðurinn starfað síðan 1921, og skal jeg nú minnast á, hve marga hann hefir styrkt og hve miklar fjárhæðir hann hefir lagt fram.

Árið 1921 eru styrkþegar 32 og samtals veittar 7 þúsund krónur, 1922 eru veittar 5400 kr., og þá eru styrkþegar 31, og 1923 njóta 57 menn styrksins, sem þá er 7125 kr.

Af vöxtum sjóðsins er ákveðið, að leggja skuli á ári hverju 1/10 við höfuðstólinn. Sjá því allir, að vaxtaupphæðin, sem heimil er til úthlutunar, er ekki nærri eins há og styrkurinn, sem menn hafa notið. En á ári hverju hafa verkalýðsfjelögin lagt sjóðnum til 2500 krónur.

En nú er altaf að aukast þörfin fyrir starfsemi þessa sjóðs. Og sú hefir verið raunin, að starfsemi sjóðsins hefir ljett mjög mikið undir með bæjarfjelaginu, en ekki einungis með því, heldur líka sveitarfjelögum úti um land, því að margir utanbæjarmenn hafa orðið styrksins aðnjótandi. Og það er auðskilið mál, að margir þeirra, sem hafa hlotið styrk úr sjóðnum, hefðu orðið að leita sveitarstyrks.

Eins og jeg hefi tekið fram, er nú þörfin altaf að aukast, fleiri og fleiri beiðnir um styrk berast til stjórnar sjóðsins, og þessvegna hefir hún sótt um 5 þús. króna styrk til hins háa Alþingis. Þar sem engin opinber slysatrygging er til fyrir verkamenn, þá vona jeg, að hv. þm. taki vel í þá fjárbeiðni, sem jeg flyt nú, og eins vænti jeg hins, að Alþingi með lögum bæti úr í þessu efni áður en langt um líður. En ástæðan til þess, að jeg flyt brtt. mína, er sú, að háttv. fjvn. hefir ekki þóknast að verða við beiðni sjóðsstjórnarinnar, þrátt fyrir hina miklu þörf. Aðaltillaga mín fer fram á sömu upphæð og sjóðsstjórnin bað um, og er það tvöfalt það tillag, er verkalýðsfjelögin láta sjóðnum í tje. En til vara flyt jeg tillögu um að styrkurinn verði 2500 kr., til þess að koma í veg fyrir, að með öllu verði synjað um styrk til sjóðsins, ef aðaltillagan þykir fara fram á of háa upphæð. Eru þessar 2500 kr. jafnhá upphæð og tillag fjelaganna til sjóðsins. Og enn vil jeg taka það fram, að jeg vænti þess fastlega, að háttv. þingdeild samþykki tillögu mína og sýni glöggan skilning á nauðsyn þessa máls.

Á annað atriði ætlaði jeg að minnast. Er það brtt. fjvn. um styrk til strandferðaskipsins Esju. Vil jeg beina þeirri fyrirspurn til nefndarinnar, hvort upphæðin, 100 þús. kr., muni vera nægilega há. Ef sú upphæð er borin saman við það fje, sem áður fyrrum var veitt til strandferða, er hún hverfandi lítil. En færi svo, að hún reyndist ónóg, mundu nægilega margir verða til að segja, að sönnun þess væri fengin, að strandferðirnar gætu ekki borið sig í höndum ríkissjóðs. Og síðan kæmu fram tillögur um að selja skipið.

Um fjárstyrkinn til Eimskipafjelags Íslands hefi jeg ekki mikið að segja. En það er augljóst, að standi hagur þess ekki með blóma, þá er það fyrst og fremst fyrir það, að menn eru ekki eins miklir velunnendur fjelagsins og þeir þykjast vera Þjóðræknin og ættjarðarástin eru þá meira á yfirborðinu heldur en í framkvæmdinni. Eins og allir vita, er flutningaþörfin svo mikil, að mönnum væri í lófa lagið að bæta hag fjelagsins, ef þeir ljetu það ganga fyrir um flutninga, en notuðu sem minst skip hinna erlendu keppinauta þess.

Loks ætla jeg að fara nokkrum orðum um brtt. háttv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) á þskj. 196, um að fella niður styrk til sjúkrasjóðs Fellshrepps. Þykir mjer hv. þm. (SvÓ) of mjög hafa lagst í kjölfar hv. fjvn. um smámunasemi, að flytja till. um að svifta sjóðinn þessum 200 krónum. Á þessi hreppur mjög erfitt um að ná til læknis og hefir nú undanfarin ár reynt að koma sjer upp sjóði. Síðustu 4–5 árin hefir þingið styrkt þessa viðleitni og finst mjer ekki ástæða til að svifta hreppinn nú styrknum. Ekki verður hag ríkissjóðs komið í betra horf með því. Vænti jeg þess, að hv. deild lúti ekki svo lágt að fella styrkveitinguna niður.