26.03.1924
Neðri deild: 33. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1607 í B-deild Alþingistíðinda. (901)

97. mál, landhelgissektir í gullkrónum

Ágúst Flygenring:

Jeg verð að taka undir það með ýmsum öðrum hv. þm., að mjer kemur þessi brtt. dálítið kynlega fyrir. Ef á að fara að reikna sektir fyrir seladráp eftir gengi, þá ætti í raun og veru að reikna allar sektir á sama hátt. Annars finst mjer rjettara, eins og hv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ), að hækka sektirnar, en ekki reikna þær eftir gengi. En fráleitt er nokkur ástæða til að blanda þessu saman við frv. um ólöglegar veiðar í landhelgi, og fyndist mjer því rjett, að hv. flm. athuguðu, hvort ekki væri rjettara að hafa þetta mál sjerstakt.