26.03.1924
Neðri deild: 33. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1609 í B-deild Alþingistíðinda. (906)
97. mál, landhelgissektir í gullkrónum
Forseti (BSv):
Tilmæli hafa komið fram frá mörgum háttv. þm. um að taka þetta mál út af dagskrá til nánari athugunar, vegna þess, að það sje ekki nægilega undirbúið til að ræðast að þessu sinni. Lýsi jeg því, að jeg mun verða við þeim tilmælum, og tek því málið út af dagskrá; en jeg vænti þess, að háttv. þm. hafi þá áttað sig svo á þessu máli, er það kemur næst til umræðu, að ekki þurfi oftar að taka það af dagskrá af þessum ástæðum.