24.03.1924
Neðri deild: 31. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 176 í B-deild Alþingistíðinda. (93)

1. mál, fjárlög 1925

Jakob Möller:

Jeg á tvær brtt. við þennan kafla fjárlaganna, sem jeg vil fara um nokkrum orðum, þar eð sum atriði þeim viðvíkjandi munu vera ókunn háttv. þm. Þar er þá fyrst brtt. v ð 12. gr. fjárl., X. brtt. á þskj. 196. Fyrri liðurinn er um utanfararstyrk til heilsubótar nafngreindum manni. Upplýsingar þessu viðvíkjandi hafa legið fyrr fjvn., en hún hefir eigi sjeð sjer fært að taka þær til greina. Á síðasta þingi var í fjáraukalögum fyrir 1923 veittur slíkur styrkur, sem hjer er farið fram á, einum manni, og var það gert með það fyrir augum, að úr því að þeir, sem þjást af þessari veiki, berklaveiki, njóta hvort sem er styrks af opinberu fje, þá væri þar ekki um nein ný fjárútlát að ræða. Maður sá, sem styrktur var í fyrra, átti og kröfur til og hafði enda notið styrks vegna veru sinnar í sjúkrahúsi. Gegnir og sama um þann mann, sem hér ræðir um. Hjer er til þess ætlast, að maðurinn verði árlangt ytra, og mun þá þessi styrkur tæplega duga honum; en auðvitað yrði það þá og sparnaður ríkissjóði að veita þetta, ef hann dveldi þar svo lengi. Þetta getur ennfremur orðið sparnaður á annan hátt. Styrkbeiðni þessari fylgir vottorð frá Matthíasi Einarssyni lækni, sem mælir með henni og tekur það fram, að þess sje engin von, að maður þessi fái nokkurn bata, ef hann dvelji áfram þar sem hann er, á frakkneska spítalanum hjer í Reykjavík, en telur hinsvegar megi vænta sæmilegs bata, ef maðurinn færi utan. Ef sú von rættist og hann fengi heilsu aftur og yrði vinnufær, gæti vel svo farið, að meira sparaðist af opinberu fje en það, sem hjer ræðir um. Jeg veit til þess, að maður sá, sem styrktur var af þinginu í fyrra, dvaldi tiltekinn tíma ytra og fjekk allmikinn bata á heilsu sinni. Held jeg hann hafi ekki þurft styrks við síðan, og er þar með spöruð meiri upphæð en sú, sem honum var veitt, miðað við það, að hann hefði allan tímann síðan til þessa dags legið hjer í sjúkrahúsi og verið styrkþegi. Jeg viðurkenni, að með berklavarnalögunum er tekinn allmikill þáttur í kjörum þessara manna. Það er alkunnugt, hve þessi veiki er afarerfið. Jeg hygg, að allir háttv. þm. sjeu mjer sammála með sjálfum sjer um það, að það sje því fremur ástæða til að taka til greina styrkbeiðnir slíkra manna. En svo er þessari veiki háttað, að það eitt, að skift sje um verustað, getur haft mjög mikil áhrif til bóta, og þó að eigi væri hægt að finna neina aðra ástæðu en að skift verður með þessu um verustað, ætti það að vera nóg til þess að taka þessa brtt. mína til greina. Þessi maður, sem hjer um ræðir, er mjög vandgæfur með svefn, og er það víst, að það mundi hafa mjög góð áhrif á líðan hans, að skift yrði um verustað. Þar sem styrkur hefir áður verið veittur í sama skyni og undir líkum kringumstæðum, þá vona jeg, að háttv. deild taki þessu vel og samþykki till. mína.

Undir sama tölulið er önnur till. frá mjer, sem sömuleiðis er um sjúkrastyrk. En nokkuð öðruvísi stendur hjer á. Kona sú, sem um er að ræða, er veik af berklaveiki og hefir verið það lengi og hefir algerlega verið á framfæri hins opinbera, lengstum í sjúkrahúsum. í fyrra fór hún þess á leit við þingið, að það veitti sjer 1000 kr. styrk til að leita sjer dvalar í sveit, í stað þess að kosta sig í sjúkrahús fyrir 8 kr. á dag. Þetta var samþykt, því menn sáu, að hjer var um sparnað að ræða, og var fjárveitingin sett í fjáraukalög fyrir 1923 og fjárlög 1924. Það má því víst teljast vangá af stjórninni að hafa ekki tekið þennan styrk upp í fjárlögin 1925. Hins vegar er fyrirgefanlegt, að hv. fjvn. hafi láðst það, því að engin umsókn mun hafa legið fyrir henni. Efast jeg ekki um, að háttv. deild muni samþykkja þetta, því það er alveg í samræmi við anda og stefnu þingsins, sparnaðinn.

Þá kem jeg að viðaukatillögu við 13. gr. undir tölulið XII. Er það uppbót á launum talsímakvenna, alt að 10 þús. kr. Það er eins um þetta sem um það, er jeg talaði um síðast, að mig furðar á, að stjórnin skuli ekki hafa tekið þessa fjárveitingu upp í frv. Hún var samþykt bæði í fjáraukalögum og fjárlögum í fyrra með þeim forsendum, að laun þessa starfsfólks ríkisins væru svo lítil, að óhjákvæmilegt væri að bæta þau upp. Hins vegar þótti ekki tiltækilegt að breyta laununum sjálfum, þar sem þau eru ákveðin í launalögunum, en eins og menn vita er í vændum endurskoðun þeirra. Uppbótin var þá áætluð 8400 kr., eða 25 kr. á mánuði fyrir hverja stúlku. Jeg vil þó áætla upphæðina að þessu sinni 10 þús. kr., til þess að ekki þurfi að einskorða uppbótina við ákveðna upphæð, enda getur fjöldi starfsmannanna verið nokkuð misjafn.

Jeg get fallist á tilmæli hæstv. atvrh. (MG), að orðin „við bæjarsímann í Reykjavík“ falli burt, og bið hæstv. forseta að taka tillit til þessa, er hann ber till. undir atkvæði. Hygg jeg, að þetta muni ekki mikið meira en 500. kr., miðað við þá upphæð, sem talsímakonum í Reykjavík hefir verið veitt, en upphæðin verður þá aðeins áætlunarupphæð.

Jeg get verið hæstv. atvrh. (MG) þakklátur fyrir, hve vel hann tók till. Býst jeg ekki við, að jeg hafi þar miklu við að bæta. Nú sem stendur eru launin 900 kr. á ári, eða um 100 kr. á mánuði með dýrtíðaruppbót, og vita þeir best, sem reyna, hvað dýrt er að lifa hjer, hversu langt slík laun hrökkva. Auk þess er vinnan mjög þreytandi, svo þó þær vinni ekki allan daginn, þá er ekki að búast við, að mikið verði úr auka vinnu, enda er starfstímanum þannig háttað, að hann kemur bæði á fyrri og síðari hluta dagsins til skiftis. Mun honum vera 4-skift.

Fleiri brtt. við þennan kafla fjárlaganna á jeg ekki og get því látið staðar numið. En þess vænti jeg, að till. mínar fái góðan byr í gegnum háttv. deild.