31.03.1924
Efri deild: 34. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1614 í B-deild Alþingistíðinda. (931)

85. mál, löggilding verslunarstaðar við Málmeyjarsund

Guðmundur Ólafsson:

Þetta mál er smámál, enda hefir ekkert um það verið sagt í þessari hv. deild. Jeg skal þó vekja athygli háttv. deildar á því, að það hefir verið skift um nafn á þessum hafnarstað í frv. síðan málið kom fyrst fram á þinginu. Hvort staðurinn er við Málmeyjarsand eða Málmeyjarsund, er ekki upplýst, og er þetta óviðkunnanlegt. Gæti farið svo, ef höfnin yrði löggilt með röngu nafni, að nema yrði lögin úr gildi á næsta þingi og löggilda hana á ný með rjettu nafni. Vil jeg gera að tillögu minni, að málið sje tekið af dagskrá og þetta verði athugað.