04.04.1924
Efri deild: 40. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1614 í B-deild Alþingistíðinda. (933)
85. mál, löggilding verslunarstaðar við Málmeyjarsund
Eggert Pálsson:
Hv. þm. A.-Húnv. (GÓ) vakti máls á því hjer í deildinni við fyrri hluta þessarar umr., hvort væri rjettara Málmeyjarsund eða Málmeyjarsandur. Hefir þetta verið athugað, og reynist hið rjetta að vera Málmeyjarsund. Villan, sem kom fram, orsakaðist í misskrift í símskeyti, sem hv. flm. málsins fjekk í byrjun. En eftir að hann hafði talað norður, leiðrjetti hann þetta. Mun því ekkert vera því til fyrirstöðu, að frv. sje samþykt eins og það er nú orðað.