27.03.1924
Neðri deild: 34. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1617 í B-deild Alþingistíðinda. (938)

105. mál, hvalveiðamenn

Frsm. (Sigurjón Jónsson):

Eins og stendur í greinargerð frv., er það borið fram eftir tilmælum Fiskifjelags Íslands og atvinnumálaráðuneytisins. Fer frv. fram á að framlengja friðunarlögin frá 1913 um 10 ár. Sjútvn. leit svo á, að með þessari friðun væri rjett að stuðla að fjölgun hvalanna, sem fækkaði svo mjög við hinar miklu hvalveiðar, sem hjer voru reknar. Eftir því sem nefndin hefir haft spurnir af, hefir stærri hvalategundum fjölgað mjög lítið við strendur landsins. Nefndin leit svo á, að þótt einhver atvinnurekstur yrði hjer á landi framvegis af þessum veiðum, þá ættu landsmenn sjálfir að vinna að honum, en vjer mundum ekki verða þess megnugir næstu 10 árin, jafnvel þótt meira færi að bera á fjölgun hvalanna en hingað til hefur verið.

Jeg vil mælast til, að frv. verði vísað beint til, 2. umr. þar kemur frá sjútvn., og væri ekki hægt að vísa því til annarar nefndar en hennar. Gætu hv. þm. þá flutt brtt. er þeir kynnu að vilja bera fram. Hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) getur þá notað tækifærið, ef hann vill eiga tal við nefndina og mun hún fús á samvinnu við hann um lögin, enda mun aldrei hafa verið til þess ætlast, að smáhveli væru friðuð.