10.04.1924
Efri deild: 45. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1620 í B-deild Alþingistíðinda. (949)

105. mál, hvalveiðamenn

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Jeg hygg, að mál þetta þarfnist ekki langrar framsögu. Eins og hv. deild er kunnugt, falla úr gildi 1. jan. 1925 lög nr. 67, 22. nóv. 1913, um hvalveiðamenn. Lög þessi eru álitin að hafa verið mjög þörf, og þó tíminn sje ekki langur, sem þau hafa gilt, hafa þau borið árangur. Virðist vera brýn nauðsyn að framlengja lögin um 10 ár enn. Sjútvn. hefir athugað málið, og hún telur framlengingu nauðsynlega. Sjútvn. leggur eindregið með því, að frv. þetta nái fram að ganga.