07.04.1924
Neðri deild: 44. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1628 í B-deild Alþingistíðinda. (991)

101. mál, sýsluvegasjóðir

Ingólfur Bjarnarson:

Jeg vil fyrst taka það fram, að jeg og hv. 2. þm. Skagf. (JS), sem flytjum þessa brtt. á þskj. 303, teljum, að frv. það, sem hjer liggur fyrir, sje til bóta; það ákvæði sem sje, að hrepparnir sjálfir geti valið um, hvernig þeir leggja á sýsluvegagjaldið. En okkur finst tvö atriði í frv. ekki sem heppilegast ákveðin, og berum því brtt. fram. Hið fyrra er það, að frv. gerir ráð fyrir, að hreppsnefndir geti ráðið því einar, hvort gjaldið sje lagt á samkvæmt ákvæðum þar um gildandi laga eða að það sje greitt úr sveitarsjóði. Okkur finst sjálfsagt, að hreppsbúar sjálfir, en ekki hreppsnefndin ein, ráði þessu, og leggjum því til, að ákveðið verði á almennum hreppsfundi, hvort gjaldið skuli lagt á fasteignirnar samkv. gildandi lögum eða greitt úr sveitarsjóði. Gerum við ráð fyrir, að flm. frv. hafi einmitt ætlast til, að hreppsmenn rjeðu þessu, og hafi því ekkert á móti þessari brtt. Þá leggjum við það einnig til, að ákvæðinu um, að hreppsnefndir skuli innheimta gjaldið, verði breytt og sýslumenn hafi á hendi innheimtuna, eins og áður. Sjáum við ekki, að þetta ákvæði frv. sje heppilegt, þar sem allir sjá, að í þeim sveitum, sem engin breyting verður gerð, er hentugra, að gjaldið sje innheimt á manntalsþingi. Í þeim hreppunum, sem breyta til, verður hreppsnefnd auðvitað að hafa á hendi innheimtuna. Þar sem brtt. raskar alls ekki tilgangi frv. á neinn hátt, væntum við þess, að hún verði samþykt. Vil jeg að lokum endurtaka í sem stystu máli, í hverju breytingarnar eru fólgnar. Samkvæmt brtt. eiga hreppsfundir að ráða, hvernig sýsluvegagjaldið er lagt á, en ekki hreppsnefnd, eins og gert er ráð fyrir í frv. Getur það oft komið fyrir, að vilji og jafnvel hagsmunir hreppsnefndar og hreppsbúa yfirleitt fari ekki saman. Hin breytingin slær varnagla við því, að varpað sje innheimtustörfum af sýslumanni á sveitarstjórnirnar, nema þar, sem breytingin kemst á og nauður rekur til.

Brtt. kom svona seint fram vegna þess, að við tókum ekki fyr eftir því, að frv. þyrfti breytingar við. Skal jeg svo ekki fara um þetta fleiri orðum.